Námsaðstaða fyrir háskólanema

Fréttir

Opið er fyrir lyklaúthlutun að fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar þessa dagana.  Aðeins fáir lyklar eru eftir til úthlutunar fyrir áhugasama háskólanema sem kjósa að læra í sínum heimabæ. 

Opið er fyrir lyklaúthlutun að fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar þessa dagana.  Aðeins fáir lyklar eru eftir til úthlutunar fyrir áhugasama háskólanema sem kjósa að læra í sínum heimabæ. 

Þeir sem óska eftir að fá lykla þurfa að mæta í afgreiðslu Bókasafns Hafnarfjarðar, vera með bókasafnsskírteini í gildi og skuldlaus við safnið. Greiða þarf tryggingargjald krónur 2.500.-(ath. eingöngu er hægt að greiða í seðlum). 

Vakin er sérstök athygli á því að þurfi bókasafnið að nýta fjölnotasalinn fyrir aðra starfsemi þá gengur það fyrir á hvaða tíma sem er!

Nánari upplýsingar um Bókasafn Hafnarfjarðar er að finna hér

Ábendingagátt