Tillögur að haustsýningu

Fréttir

Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2017. Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 30. október 2016.

Eins og undanfarin ár gefst
sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg
haustið 2017. Sýningin Tilraun
– leir og fleira
sem nú stendur yfir í safninu var valin úr
athyglisverðum tillögum sem sendar voru inn á síðasta ári. Markmiðið með því að
óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs
sýningarstjóra sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu en jafnframt að
kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri
sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða
er til að halda úti slíku verkefni, en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar
og áhugaverðar sýningar sem vakið hafa athygli og verið vel sóttar.
 
Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 30. október 2016.
 
Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða
aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem
fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina
sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega
greiningu.  
 
Umsóknarferlið er tvískipt og eru þeir sem áhuga hafa á að takast á við þetta
verkefni hvattir til að kynna sér verkefnið frekar hér.  
 
Árið 2011 hóf haustsýningaröðin göngu sína með sýningunni Í bili sem unnin var af
Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðingi, 2012 var sett upp sýningin SKIA í sýningarstjórn
Guðna Tómassonar listsagnfræðings og Anna María Bogadóttir menningarfræðingur
og arkitekt vann sýninguna Vísar
– húsin í húsinu
árið 2013. Á árinu 2014 var hugmynd Helgu
Þórsdóttur, menningarfræðings og myndlistarmanns, að sýningunni Rás valin úr áhugaverðum
tillögum. Haustið 2015 voru það listfræðingarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og
Aldís Arnardóttir með sýninguna Heimurinn
án okkar
 og í ár var tillaga hönnunartvíeykisins TOS sem varð
fyrir valinu en TOS er skipað þeim Hildi Steinþórsdóttur, arkitekt, og Rúnu
Thors, vöruhönnuði. Sýningin ber nafnið Tilraun
– leir og fleira
og er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í
ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar.
 
Eins og fyrr þá komu tillögurnar frá fólki úr ýmsum geirum, listamönnum og
fræðimönnum af ólíkum sviðum en einnig frá fólki með sérmenntun á sviði
sýningarstjórnar. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir
áhugaverðar hugmyndir þannig að safnið verði vettvangur þar sem myndlist fær
notið sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og
málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang
umræðna og þróunar í Hafnarborg.
 
Sendið tillögur á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is
Merkið póstinn: Haust2017.

Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790 og á heimasíðu safnsins

Ábendingagátt