Nýjar sýningar í Hafnarborg

Fréttir

Föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 20 verða tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar 2016, sýningin Tilraun – leir og fleira, í aðalsal safnsins og svo sýning sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla, í Sverrissal Hafnarborgar þar sem hún mun flytja gjörning á opnuninni.

Föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 20 verða tvær
sýningar opnaðar í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar 2016, sýningin Tilraun
– leir og fleira,
í aðalsal safnsins og svo sýning sænska hönnuðarins
Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla,
í Sverrissal Hafnarborgar þar sem hún mun flytja gjörning á opnuninni.

Tilraun – leir og fleira

Sýningin er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar.
Þátttakendur sýningar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin
mismunandi orð til að vinna þau útfrá. Útkoman eru annarsvegar fullgerð verk á
meðan önnur sýna rannsókn eða vinnuaðferð. Sýnendur
eru: Aldís Bára Einarsdóttir, Anna Hallin, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Brynjar
Sigurðarson, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Erna Elínbjörg Skúladóttir, Hanna Dís
Whitehead, Hildigunnur Birgisdóttir, Daniel Durnin, Garðar Eyjólfsson,
Gunnhildur Helgadóttir, Olga Bergmann, Páll Einarsson, Ragnheiður Ingunn
Ágústsdóttir, Sigga Heimis, Sigrún Jóna Norðdahl, Sigurður Guðmundsson,
Sigurður Hauksson, Sigurlína Margrét Osuala, Theodóra Alfreðsdóttir og Veronika
Sedlmair.

Sýningarstjórn
er í höndum hönnunartvíeykisins TOS sem skipað er þeim Hildi
Steinþórsdóttur
arkitekt og Rúnu Thors vöruhönnuði en hugmynd þeirra
að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað
var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2016.

Sýningarstjórar verða með sýningarstjóraspjall fyrir gesti laugardaginn 27. ágúst
kl. 14.

Tilraun – leir og fleira er sjötta sýningin
í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr
innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni,
sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið
2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012,
sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu,
haustið 2013, Rás, sýning Helgu Þórsdóttur,  haustið 2014 og
sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur listfræðinga, Heimurinn
án okkar haustið 2015. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg
skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist
fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg
kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2017. Frekari upplýsingar má
nálgast á heimasíðu Hafnarborgar: www.hafnarborg.is

3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla

Sýning
og gjörningur sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur –
Hröð, handgerð framleiðsla
tekur á hvernig neyslu og framleiðslu er
háttað í dag og hvernig gera má betur í framtíðinni. Í gjörningi sínum í
Hafnarborg setur hún upp framleiðsluferli þar sem hún lætur reyna á hvernig
ólíkir þættir hins handgerða og fjöldaframleidda geta haldist í hendur.

Jenny
Nordberg
er iðnhönnuður búsett í Svíþjóð sem hefur hlotið
viðurkenningar og lof sem framsækinn hönnuður á alþjóðavettvangi. Jenny
staðsetur sig á milli myndlistar og hönnunar og leitast við að víkka út
hugmyndir samtímans um hönnun og hönnuði. Verkefnið er styrkt af sænska
sendiráðinu á Íslandi.

Ábendingagátt