Category: Fréttir

Barnakóramót Hafnarfjarðar 14. mars

Árlegt kóramót hafnfirskra barna, Barnakóramót Hafnarfjarðar, verður laugardaginn 14. mars í Víðistaðakirkju. Mótinu er tvískipt eftir aldri barnanna en alls munu nálægt 280 börn koma þar fram þar sem dagskráin er eftirfarandi: Kl. 12:30    Tónleikar ― yngri kórar     Barnakór Hafnarfjarðarkirkju     Miðkór Lækjarskóla     Litlikór Öldutúnsskóla     Kór Áslandsskóla     Kór Víðistaðakirkju Kl. […]

Snjóbrettamót í miðbænum

Snjóbrettamóti SLARK verður haldið í annað sinn á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar þann 7.mars kl. 13:30. Þar mun allt helsta snjóbrettafólk landsins sýna listir sínar á handriðum, rörum og pöllum. Það verður að sjálfsögðu góð tónlist og rugluð stemning á mótinu þar sem að hljómsveitir og plötusnúðar munu halda uppi stemningu á meðan á mótinu […]

Bæjarstjórnarfundur í dag kl. 14.00

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn  4.mars 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.

Hafnarfjörður heilsueflandi samfélag

Hafnarfjörður varð i dag  formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning. Í Heilsueflandi samfélagi er lögð áhersla á að vinna með fjóra meginþætti: Hreyfingu, næringu, líðan og lífsgæði „ Þetta er spennandi verkefni sem miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Hafnarfjarðarbæjar […]

Úttekt á Hafnarfjarðarhöfn

Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir var samþykkt að fram fari úttekt á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri  Hafnarfjarðarhafnar sl. tíu ár. Úttektin verði víðtækari á hafnarsjóði en áform voru um í áður samþykktri rekstrarúttekt á stofnunum Hafnarfjarðarbæjar. Niðurstöður verða hafðar til hliðsjónar við mótun framtíðarstefnu í málefnum hafnarinnar þar sem m.a. er horft til […]

Á gráu svæði í Hafnarborg

Laugardaginn 7. mars kl. 15 verður opnuð í Hafnarborg sýning á nýjum verkum skoska hönnuðarins David Taylor. Sýningin ber yfirskriftina Á gráu svæði. David Taylor hefur vakið athygli víða um heim fyrir einstaka og framsækna hönnun. Á gráu svæði er hans fyrsta sýning hér á landi. Sýningin samanstendur af hversdagslegum hlutum eins og lömpum, klukkum […]

Markmiðið að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum

Fræðsluráð hefur samþykkt  að fara í aðgerðir til að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar. Í Hafnarfirði er hlutfall leikskólakennara í dag um 31% og aðrir með uppeldismenntun um 17%.  Alls er hlutfall fagfólks því um 48% í leikskólum Hafnarfjarðar. Þótt þetta sé í hærri kantinum ef miðað er við önnur sveitarfélög vantar talsvert upp […]

Frábæru málþingi lokið

Í gær var haldið málþingi um læsi fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla í Hafnarfirði á skipulagsdegi þeirra.  Nálægt 900 starfsmenn leik- og grunnskóla bæjarins, auk gesta, sátu þingið og var almenn ánægja með fyrirlestrana og málstofurnar sem i boði voru.   Málþingið var  hluti af læsisverkefni bæjarins sem farið var af stað með á síðasta […]

Símtalagögn tóku eingöngu til númera sem bærinn greiðir að fullu

Í tilefni af umræðu um athugun Hafnarfjarðarbæjar á símtölum úr símkerfi bæjarins vill Hafnarfjarðarbær koma eftirfarandi á framfæri: Gögn frá Vodafone til Hafnarfjarðarbæjar tóku ekki til símanúmera þar sem þak er á greiðsluþátttöku bæjarins og náðu því til mun færri símanúmera en áður hefur komið fram í fjölmiðlum.  Í yfirlýsingu Vodafone til bæjarins, segir m.a. […]

Hádegistónleikar í Hafnarborg

Viðar Gunnarsson kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg þriðjudaginn 24. febrúar kl. 12 ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum sem bera nafnið Ást og bænir mun Viðar flytja þekktar ítalskar aríur eftir W. A. Mozart, G. Donizetti og G. Verdi. Þetta verða fyrstu hádegistónleikarnir eftir áramót en fyrr á þessu tónleikaári komu fram Elmar Gilbertsson, […]