Félag eldri borgara í Hafnarfirði bauð nýverið upp á fyrirlestur sem ber heitið „Kynheilbrigði eldriborgara“ í opnu húsi í Hraunseli. Fyrirlesari var Sigga Dögg kynfræðingur. Mættir voru margir hressir eldri borgara til að fá fræðslu um ýmis mál er varðar kynheilbrigði og sambönd fólks. Flutningur Siggu Daggar á efninu var frábær og voru gestir mjög […]
Flokkur: Fréttir
Íbúðir óskast til leigu
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu nokkrar íbúðir í sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar gefur Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 eða á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is. Óskað er eftir að upplýsingar um íbúðir berist fyrir 1. desember. Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðarbæjar.
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert og fellur á mánudag þetta árið. Þá hefst formlega Stóra upplestrarkeppnin í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún er haldin í 7. bekkjum grunnskólanna. Í vetur heldur hún upp á 20 ára afmæli í Hafnarfirði og þar sem hátíðin hófst í Hafnarfirði verður hún aðeins 20 ára í […]
Jól í skókassa
Í Öldutúnsskóla var ákveðið að taka þátt í verkefni JÓL Í SKÓKASSA í ár. Undirbúningur hófst í vikunni fyrir vinavikuna. Þá fóru að berast skókassar og varningur í þá frá heimilum nemenda og starfsfólks. Í vinavikunni var raðað í kassana og þeim pakkað inn. Til að nemendur myndu tengja enn betur við verkefnið var þeim […]
Fjölgreindarleikar í Áslandsskóla
Fjölgreindarleikar eru í Áslandsskóla í dag og þeir hófust í gær. Í þeim felst að nemendur glíma við margs konar verkefni og ólík þar sem hefðbundin stundaskrá er sett til hliðar á meðan. Á fjölgreindarleikunum í Áslandsskóla mátti sjá margs konar verkefni, s.s. að púsla, að kasta bréfaskutlum, leysa stafarugl, dansa, hitta í körfu og […]
Skólaþing nemenda í Áslandsskóla
Skólaþing nemenda í Áslandsskóla var haldið þriðjudaginn 10. nóvember. Þann dag ræddu nemendur skólans margvísleg sjónarmið sín og skoðanir um skólastarfið í þeim. Markmiðið með skólaþinginu er að gefa öllum vettvang eða tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og fá stuðning fyrir góðum tillögum sem efla skólastarfið. Nemendur á yngsta stigi ræddu frístundaheimili, […]
Viljayfirlýsingu um ljósleiðaratengingu
Bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar og stjórnendur Gagnaveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um ljósleiðaratengingu allra heimila í bænum. Nú þegar nær Ljósleiðarinn til um 2.100 heimila í Hafnarfirði. Í kjölfar viljayfirlýsingarinnar munu 500 heimili til viðbótar verða tengd fyrir árslok og alls verða um tíu þúsund heimili í Hafnarfirði tengd ljósleiðaranum fyrir árslok 2018. Það eru öll […]
Bæjarstjórnarfundur 11. nóvember
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 11.nóvember 2015 kl 16:00. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 11. nóvember 2015 Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Félagsmiðstöðvadagurinn
Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn fyrir tilstilli Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Markmið dagsins er að gefa áhugasömum færi á að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi og þá sérstaklega foreldrum. Þannig geta foreldrar kynnst því sem þar fer fram og þeim viðfangsefnum sem unglingarnir fást við. Aldan í Öldutúnsskóla Opið hús, vöfflur og kaffi. Unglingum gefst kostur á […]
Íbúafundur um fjárhagsáætlun
Bæjarstjóri boðar til fundar með íbúum Hafnarfjarðar um fjárhagsáætlun ársins 2016 þriðjudaginn 10. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í Bæjarbíói kl. 20:00 – 21:30. Á fundinum mun bæjarstjóri kynna helstu áherslur og niðurstöður í tillögu að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 2016 og þriggja ára áætlun 2017 – 2019. „Það er mikilvægt að bæjarbúar hafi upplýsingar […]