Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum í gær að stofnaður verði starfshópur sem fái það verkefni að meta húsnæðisþörf leik- og grunnskóla á Völlum. Starfshópurinn fær það hlutverk að móta tillögur um framtíðarfyrirkomulag skólastarfs á svæðinu og skili tillögum þar um fyrir 1. desember 2015. Erindisbréf starfshópsins og tilnefningar í hann verði lagðar fram á næsta […]
Flokkur: Fréttir
Heimurinn án okkar
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er sýningin Heimurinn án okkar. Á sýningunni eru verk eftir myndlistarmennina Björgu Þorsteinsdóttur, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Finn Jónsson, Gerði Helgadóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ragnar Má Nikulásson, Steinu og Vilhjálm Þorberg Bergsson sem öll eiga sér ólíkan bakgrunn í íslensku myndlistarlífi. Á sýningunni er teflt saman verkum íslenskra listamanna af ólíkum kynslóðum sem vinna með hugmyndir […]
Stuðningur við starfsfólk í leikskólanám
Í dag voru undirritaðir samningar við starfsfólk í leikskólum bæjarins sem fær námsstyrk frá Hafnarfjarðarbæ til að stunda nám í leikskólakennarafræðum. 23 starfsmenn leikskólanna hafa fengið námsstyrk til að stunda nám í leikskólafræðum, ýmist til grunnnáms eða meistaranáms. Þeir fá stuðning til þess að sækja kennslu á dagvinnutíma og fá þannig leyfi frá störfum í […]
Hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu
Starfsfólk Áslandsskóla hleypur sem fyrr ýmsar vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoni. Líkt og undanfarin ár hlaupa þau til styrktar Íþróttafélaginu Firði. Gangi ykkur vel á morgun.
Listamannaspjall og sýningarlok
Sunnudaginn 23. ágúst kl. 15 munu Björn Árnason, Daniel Reuter og Katrín Elvarsdóttir koma saman í aðalsal Hafnarborgar og ræða verk sín á sýningunni Enginn staður við sýningargesti. Þetta er jafnframt síðasti sýningardagur sýningarinnar. Á sýningunni eru verk átta ljósmyndara sem allir eru búsettir á Íslandi og beina sjónum sínum að íslenskri náttúru. Ásamt þeim Birni, […]
Grunnskólastarfið að hefjast
Grunnskólar Hafnarfjarðar hefja kennslu í næstu viku þegar nemendur mæta í skólann mánudaginn 24. ágúst nk. Nánari upplýsingar um upphaf skólastarfsins í hverjum skóla má svo finna á heimasíðum skólanna: Áslandsskóli Hraunvallaskóli Hvaleyrarskóli Lækjarskóli Setbergsskóli Víðistaðaskóli (Víðistaðatún og Engidalur) Öldutúnsskóli Starfsfólk skólanna er þegar mætt til starfa og hefur hafið undirbúning kennslunnar og […]
Heilsubærinn Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær og Embætti landlæknis standa fyrir átakinu Heilsueflandi samfélag til eflingar lýðheilsu í bæjarfélaginu. Hluti af átakinu felst í að afla gagna um almenna heilsu bæjarbúa og aðgengi þeirra að heilsueflingu. Gögnin hjálpa einnig til við mat á stöðu lýðheilsumála í Hafnarfirði. Álit bæjarbúa er mikilvægt í slíku stöðumati og því er boðað til tveggja […]
Göngu-, hjóla- og hlaupaleiðir
Í umhverfi Hafnarfjarðarbæjar eru fjölbreyttar göngu-og hlaupaleiðir sem henta vel til útivistar fyrir alla fjölskylduna. Göngu- og hlaupaleiðir eru hluti af samgöngukerfi bæjarins og hefur kerfið stækkað töluvert á umliðnum árum og er lengd þess nú um 40% af lengd gatnakerfisins. Aukin áhersla hefur verið á að bæta aðgengi gangandi fólk, hlaupandi og hjólreiðafólks. Ef þú […]
Vinnuskólinn fær Grænfánann
Vinnuskóli Hafnarfjarðar ákvað í sumar að innleiða inn Grænfánann, alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni. Nú flokkar Vinnuskólinn allt rusl og nýtir matarafganga til moltugerðar. Umhverfishópur skipaður ungu fólki var stofnaður og stóð hópurinn fyrir fræðslu fyrir starfsmenn vinnuskólans og voru m.a. með fræðslu í mötuneyti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar. Starfsmenn á skrifstofu […]
Árshlutareikningur, 1. janúar til 30. júní 2015
Rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánuði ársins var neikvæð um 389 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir um 80 milljóna króna halla á tímabilinu. Þetta frávik má rekja til ófyrirsjáanlegrar endurgreiðslu á eftirágreiddu útsvari að fjárhæð um 400 milljónir króna. Aðrar tekjur eru yfir áætlunum vegna söluhagnaðar hlutabréfa í HS Veitum hf. Rekstur málaflokka var í […]