Skipulagsbreyting

Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Hvaleyrarbraut 3. Breyting felur í sér stækkun og tilfærsla byggingarreits á lóð og að leyfðar verði 6 íbúðir í núverandi byggingu.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Hvaleyrarbraut 3.

 

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 5.maí 2015, að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Hvaleyrarbraut 3 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að byggingarreitur er stækkaður og færður til á lóð og að leyfðar verði 6 íbúðir í núverandi byggingu. Hámarks nýtingarhlutfall miðað við fullnýttan byggingarreit verði N=0,58.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 20. apríl til 1. júní 2016. 

Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna hér

Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.

 

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 1. júní 2016. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

 

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar
Skipulagsfulltrúi.

Ábendingagátt