Sumardagurinn fyrsti

Fréttir

Sumri er fagnað með fjölbreyttri dagskrá á Sumardaginn fyrsta í Hafnarfirði.  Ókeypis er í sund í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug í tilefni dagsins.

Við fögnum sumri með metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðarhöld verða víðsvegar um bæinn í tilefni dagsins þ.á.m. hlaup, fjölskyldusmiðja, Sirkus Íslands, skátamessa, skrúðganga, fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjón skátafélagsins Hraunbúa, söguganga, ömmu-og afabíó og komedy kvöld.

Sumardagurinn fyrsti Hér má sjá dagskrá Sumardagsins fyrsta

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar óskar íbúum, starfsmönnum fyrirtækja og stofnana, öðrum nærsveitungum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.

GLEÐILEGT SUMAR!

Ábendingagátt