Fanney ráðin fræðslustjóri

Fréttir

Fanney Dóróthe Halldórsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri fræðslu og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Fanney hefur gegnt stöðu skólastjóra Grunnskólans í Sandgerði frá árinu 2007.

Fanney Dóróthe Halldórsdóttir hefur verið ráðin
sviðsstjóri fræðslu og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Starf
fræðslustjóra var auglýst laust til umsóknar í febrúar og var Fanney valin úr
hópi fjórtán umsækjenda. Fanney hefur gegnt stöðu skólastjóra Grunnskólans í
Sandgerði frá árinu 2007 en hún hefur starfað við skólann frá árinu 1996.

Viðamikil stjórnunarreynsla og þekking á íslensku
skólasamfélagi


FanneyHalldorsdottir

Fanney er með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, diplómagráðu í stjórnun menntastofnana
frá Háskóla Íslands og er að ljúka M.Ed. gráðu í stjórnun menntastofnana frá
sama skóla. Hún hefur viðamikla reynslu af stjórnun en frá árinu 2007 hefur
Fanney gegnt stöðu skólastjóra Grunnskólans í Sandgerði og forstöðumanns
Skólasels, frístundaheimilis. Hún tók einnig við forstöðu bæjarbókasafns
Sandgerðis árið 2009. Áður en Fanney tók við starfi skólastjóra Grunnskólans í
Sandgerði gegndi hún stöðu aðstoðarskólastjóra frá árunum 2005-7 og á árunum
1996-2005 sinnti hún umsjónarkennslu og deildarstjórastarfi við sama skóla.
Fanney hefur í starfi sínu sem skólastjóri m.a. innleitt heilsueflandi hugsun í
skólastarfið og er Grunnskólinn í Sandgerði í dag heilsueflandi skóli, einn
grunnskóla á Suðurnesjum. Skólinn vinnur einnig eftir hugmyndafræði uppeldis og
ábyrgðar sem Fanney átti frumkvæði að. Fanney þykir hafa sýnt mikinn metnað í
fyrri störfum, mikla leiðtogahæfileika í verkefnum sínum og þykir hafa náð
eftirtektarverðum árangri með skólastarfið í Sandgerði.

Við bjóðum Fanneyju velkomna í hóp starfsmanna
Hafnarfjarðarbæjar!

Ábendingagátt