Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Mánudaginn 1. júní, á 107 ára kaupstaðarafmæli bæjarins, verða lagðar fram í fræðsluráði tillögur sem miða m.a. að því að lækka innritunaraldur barna í leikskóla og hækka mótframlag til foreldra barna hjá dagforeldrum.
Mánudaginn 1. júní, á 107 ára kaupstaðarafmæli bæjarins, verða lagðar fram í fræðsluráði tillögur sem miða m.a. að því að lækka innritunaraldur barna í leikskóla og hækka mótframlag til foreldra barna hjá dagforeldrum. Með þessum tillögum er reglunum breytt þannig að yngri börn komast inn í leikskóla og stefnt er að því að börn verði 18 mánaða á árinu sem þau verða innrituð í stað tveggja ára eins og kveðið er á um í núgildandi reglum.
Yngri börn á leikskóla
,,Markmiðið er að setja fjölskylduna í forgang, bæta þjónustuna og gera það sem hægt er til að lækka álögur á íbúa bæjarfélagsins. Fyrsta skrefið í þeim efnum nú er að koma verulega til móts við foreldra ungra barna. Það verður gert með því að lækka innritunaraldur í leikskóla, hækka mótframlag til foreldra barna hjá dagforeldrum og svo er ætlunin að fara af stað með tilraunaverkefni um sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs.
Tillögurnar gera ráð fyrir að 1. ágúst 2015 verði börn fædd í janúar og febrúar 2014 innrituð í leikskóla bæjarins, innritað verði aftur 1. febrúar 2016. En stefnt er að því að börn verði innrituð í leikskóla á árinu sem þau verða 18 mánaða.
Gjaldfrjáls leikskóli
Í haust hækka niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldri úr 40.000 kr. í 50.000 kr á mánuði og til viðbótar kemur mótframlag við 18 mánaða aldur barns þar til það fær leikskólavist. Einnig verður hafinn undirbúningur að tilraunaverkefni um gjaldfrjálsan leikskóla og verða 1-2 leikskólar fengnir til að taka þátt í því. Reynsla þeirra af verkefninu verður síðan höfð til hliðsjónar þegar ákveðið verður um slíkt skipulag til framtíðar.
„Með þessu er verið að taka fyrstu skrefin í að lækka útgjöld barnafjölskyldna og er frekari breytinga á gjöldum að vænta áður en langt um líður, en sérstakur starfshópur þar um er enn að störfum,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir .
Hér er hægt að sjá tillögurnar.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu…
Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en föstudaginn 17. maí kl. 15.
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með…
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024. Ebba Katrín hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik á sviði og…
Nú er allt að smella hjá nemendum 10. bekkjar sem sýna söngleikinn Matthildi. Fyrsta sýning af sex er föstudaginn 26.…
Hátt í 3000 ungmenni mættu í tveimur hollum í útgáfupartý bókarinnar LÆK í Hafnarfirði á Thorsplani í morgun, fyrst miðstig…
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 28. apríl. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í Ráðhúsi og á Norðurhellu tók forskot…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var lagður fram í bæjarráði í dag. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 808…
Í byrjun desember óskaði Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum í hönnun og byggingu sex deilda leikskóla við Áshamar 9 í Hamraneshverfi í…
Hvað ætlar þú að gera á þriðjudagskvöld? Ingibjörg Valgeirsdóttir frá Saga Story House og Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur leiða skemmtilegt fræðslukvöld…