Hafnarborg býður upp á myndlistar- og tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6–12 ára í sumar, líkt og fyrri ár. Farið verður í rannsóknarleiðangra og undirstöðuatriði myndlistar kynnt í gegnum rannsóknir á umhverfinu, sýningar í safninu og skapandi vinnu. Unnin verða verkefni í fjölbreytta miðla – teiknað, málað og mótað – með það að markmiði að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu barnanna.

Í boði eru þrjú 5 daga námskeið fyrir aldurshópana 6–9 ára og 10–12 ára. Þá verður námskeiðið sem hefst þann 26. júní með tónlistar- og söngívafi í tengslum við Sönghátíð í Hafnarborg. Lýkur því námskeiði með þátttöku barnanna í fjölskyldutónleikum á Sönghátíð föstudaginn 30. júní kl. 17.

Ábendingagátt