Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Brettafélag Hafnarfjarðar býður uppá hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið fer fram í húsakynnum félagsins að Flatahrauni 14 í Hafnarfirði. Krökkunum verður skipt upp í hópa eftir aldri og getu. Farið verður yfir grunnatriði hjólabrettaiðkunar en einnig verður þeim sem lengra eru komnir leiðbeint í flóknari æfingum. Þegar veður er gott er farið með hópana út á hjólabretti.
Markmið námskeiðanna: • Kynna hjólabrettaíþróttina fyrir stelpum og strákum á aldrinum 6 til 13 ára • Hafa gaman saman á hjólabretti • Læra grunnatriði á hjólabretti • Kynnast hjólabrettasiðum á hjólabrettasvæðum • Fyrir lengra komna, æfa flóknari æfingar
Námskeið bæði fyrir og eftir hádegi nema í júlí þá eru bara námskeið fyrir hádegi
Dagsetningar:
Námskeið 01 12.6 til 16.6 f.h
Námskeið 02 12.6 til 16.6 e.h
Námskeið 03 19.6 til 23.6 f.h
Námskeið 04 19.6 til 23.6 e.h
Námskeið 05 26.6 til 30.6 f.h
Námskeið 06 26.6 til 30.6 e.h
Námskeið 07 3.7 til 7.7 f.h
Námskeið 08 10.7 til 14.7 f.h
Námskeið 09 17.7 til 21.7 f.h
Námskeið 10 24.7 til 28.7 f.h
Námskeið 11 31.7 til 4.8 f.h
Námskeið 12 8.8 til 11.8 f.h ( 4 DAGAR )
Námskeið 13 8.8 til 11.8 e.h ( 4 DAGAR )
Námskeið 14 14.8 til 18.8 f.h
Námskeið 15 14.8 til 18.8 e h
Verð fyrir hvert námskeið er 11.500 kr og 9.200 kr fyrir 4 daga námskeið, veittur er 10% systkinaafsláttur. Fjöldatakmarkanir eru á námskeiðin.
Hægt er að fá lánuð hjólabretti og hjálma á staðnum en við mælum með að krakkarnir noti eigin búnað ef þau eiga. Hjálmaskylda er á námskeiðinu. Við mælum með því að krakkarnir komi með létt nesti t.d. ávexti og vatnsbrúsa.
Athugið að ekki er hægt að bíða í húsnæði BFH á milli námskeiða ef iðkendur eru bæði fyrir og eftir hádegi.
Yfirumsjón með námskeiðinu hefur Aðalsteinn Valdimarsson, íþróttafræðingur og Jökull Elí Borg íþróttafræðingur þeim til aðstoðar verða þjálfara frá BFH ásamt hressum krökkum frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi.
Vellir Hafnarfjörður Keramik Vikunámskeið Sumar 2023 Sunna Sigfríðardóttir verður með keramiknámskeið á verkstæði sínu Klukkuvöllum 21 fyrir börn fædd 2011-2016 sumarið 2023.
Djassdansinn hefur verið í boði hjá listdansskólanum síðan 2001 og hafa margir nemendur frá okkur haldið áfram í framhaldsnám í dansi bæði hérlendis og erlendis.
Metnaðarfullt og skemmtilegt 5 vikna sumarnámskeið fyrir 12 – 15 ára með Berglindi Rafns dansara!
Á námskeiðinu fá börnin að kynnast fjölbreyttum dansstílum þar á meðal klassískum ballett, djassdansi, spuna, söngleikjadansi og nútímadansi. Börnin kynnast dansinum í gegnum sköpun og leik þar sem aðaláherslan er dansgle
Hafnarborg býður upp á myndlistar- og tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6–12 ára í sumar