Tennis og leikjaskólinn

Tennis- og leikjaskóli TFH í samstarfi við Tennishöllina fyrir 5-8 ára
Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðu atriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-, hlaupa- og tennisleiki auk þess sem spilaður er mini tennis. Ýmislegt annað er til gamans gert svo sem barnaeróbikk með skemmtilegri tónlist, ratleikur, og fleira. Á hverju námskeiði er lögð áhersla á að auka hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi.

Miðað er við að um það bil einn leiðbeinandi sé á hver 6 börn. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri. Námskeiðin eru sett upp sem tveggja vikna námskeið en hægt er að taka stakar vikur.

Námskeiðsvikur eru eftirfarandi:

Námskeið 1: 12. – 23. júní
Námskeið 2: 26. júní – 07. júlí
Námskeið 3: 10. – 21. júlí
Námskeið 4: 24. júlí – 04. ágúst
Námskeið 5: 08. – 18. ágúst

Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzu – eða grillveisla og fá allir nemendur bol og viðurkenningarskjal.
Hægt er að velja um námskeið frá kl. 09:00 – 12:00, frá kl. 13:00 – 16:00 og allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00.
Börnin geta fengið gæslu kl. 07:45 – 09:00, í hádeginu og frá kl. 16:00 – 17:15. Gæsla er án endurgjalds.

Námskeiðsgjald: Verð fyrir fullt tveggja vikna námskeið er 32.900 kr fyrir hálfan daginn og 48.900 kr fyrir heilan daginn.
Hægt er taka stakar vikur og er vikan hálfan daginn á kr. 18.900 kr. og fyrir heilan dag 27.900 kr.
Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini. Veittur er hlutfallslegur afsláttur ef vika á námskeiði er styttri en 5 dagar.

Umsjón með Tennisskólanum hefur Sindri Snær Svanbergsson ásamt tennisþjálfurum TFK, TFG og TFH.

Skráning er hafin á heimasíðu Tennishallarinnar.
Skráning: http://www.tennishollin.is/tennis-og-leikjaskolinn/
Einnig er hægt að hafa samband við Tennishöllinna í síma 564 – 4030 og í tölvupósti á tennis@tennishollin.is.

Vinsamlegast frestið ekki skráningu því aðeins 50 börn komast á hvert námskeið.

Ábendingagátt