Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á tennisæfingar, tennisspil og ýmsa tennisleiki auk þess sem spilaðir eru hlaupa- og boltaleikir. Þátttakendur fá einnig að kynnast nýrri íþrótt á Íslandi sem heitir Padel. Aðal áhersla, í öllum aldurhópum, er að hafa gaman af tennis og padel. Hvert námskeið er sett upp sem tveggja vikna námskeið en hægt er að taka stakar vikur.
Námskeiðsvikur eru eftirfarandi:
Námskeið 1: 12. – 23. júní Námskeið 2: 26. júní – 07. júlí Námskeið 3: 10. – 21. júlí Námskeið 4: 24. júlí – 04. ágúst Námskeið 5: 08. – 18. ágúst
Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzu – eða grillveisla og fá allir nemendur bol og viðurkenningarskjal. Hægt er að velja um námskeið frá kl. 09:00 – 12:00, frá kl. 13:00 – 16:00 og allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00. Börnin geta fengið gæslu kl. 07:45 – 09:00, í hádeginu og frá kl. 16:00 – 17:15. Gæsla er án endurgjalds.
Námskeiðsgjald: Verð fyrir fullt tveggja vikna námskeið er 32.900 kr fyrir hálfan daginn og 48.900 kr fyrir heilan daginn. Hægt er taka stakar vikur og er vikan hálfan daginn á kr. 18.900 kr. og fyrir heilan dag 27.900 kr. Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini. Veittur er hlutfallslegur afsláttur ef vika á námskeiði er styttri en 5 dagar.
Umsjón með Tennisskólanum hefur Sindri Snær Svanbergsson ásamt tennisþjálfurum TFK, TFG og TFH.
Skráning er hafin á heimasíðu Tennishallarinnar. Skráning: http://www.tennishollin.is/tennis-og-leikjaskolinn/ Einnig er hægt að hafa samband við Tennishöllinna í síma 564 – 4030 og í tölvupósti á tennis@tennishollin.is.
Vinsamlegast frestið ekki skráningu því aðeins 50 börn komast á hvert námskeið.
Hafnarborg býður upp á myndlistar- og tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6–12 ára í sumar
Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður uppá badmintonæfingar fyrir alla aldurshópa yfir vetrartímann í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á badminton- og borðtennisnámskeið í sumar fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára.
Í Kaldárseli býður KFUM og KFUK upp á sumarbúðadvöl og leikjanámskeið á sumrin.
Sumarfrístund í frístundaheimilum Hafnarfjarðar eru námskeið fyrir börn á aldrinum 6-8 ára. Skipulögð dagskrá er frá 09:00-12:00 og 13:00-16:00 og hægt er að mæta frá 08:00-16:30 Dagskráin er breytileg eftir hvaða frístund er valin.
Æft er að skjóta með loftskammbyssu sem þarfnast einbeitingu og nákvæmni. Síðan er kept á mótum.