Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á árlegri sumarhátíð á leikskólanum Norðurbergi fékk leikskólinn afhentan Grænfánann í sjöunda skiptið fyrir viðurkenningu á umhverfisstefnu leikskólans. Fulltrúi frá Landvernd, Katrín Magnúsdóttir, afhenti Umhverfisráði barna fánann.
Laugardaginn 4. júní, á sjálfri sjómannadagshelginni, var líf og fjör í góða veðrinu í leikskólanum Norðurbergi. Árleg sumarhátíð var í leikskólanum og að auki fékk leikskólinn afhentan Grænfánann í sjöunda skiptið fyrir viðurkenningu á umhverfisstefnu leikskólans. Fulltrúi frá Landvernd, Katrín Magnúsdóttir, afhenti Umhverfisráði barna fánann og gengu þau, ásamt gestum, fylgtu liði að fánastöng leikskólans og hífðu fánann upp. Margt var um manninn og naut hópurinn sín í veðurblíðunni enda margt í boði s.s. tónlist, myndlist, vöfflur og gróðursetning.
Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar um allan heim sem tákn um góða umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar verkefna sem eru ætluð til að efla vitund nemenda, kennara og fjölskyldna um umhverfismál. Í vetur vann leikskólinn með þemað „Neysla/Plastneysla“. Markmið verkefnsins var að lágmarka alla notkun á plasti í daglegu lífi og gera börn og fullorðna meðvitaðri um skaðsemi þess fyrir umhverfið. Allir aldurshópar unnu í margs konar verkefnum yfir veturinn. Starfsmenn elstu barnanna fóru í samstarf við heimili barnanna með lítið heimaverkefni. Öll börnin fengu gefins fjölnota innkaupapoka (þökk sé Sorpu) og fóru með hann heim ásamt lýsingu fyrir foreldrana í hverju verkefnið fælist. Þau áttu að safna öllu plasti sem kæmi inn á heimilið í þrjá daga og setja í pokann og koma með hann í leikskólann á fjórða degi. Hópurinn hittist, fór yfir það sem kom í pokann og tróðu því í plexiglerkassa öllum til sýnis. Herlegheitin voru vigtuð og komist að því að hver fjölskylda skilar frá sér rúmlega 29 kg. af plasti á ári hverju! Í leikskólanum eru 137 fjölskyldur og þessar fjölskyldur láta því frá sér samanlagt u.þ.b. 4 tonn af plasti á ári! Mjög há tala og sérlega í ljósi þess að plast eyðist ekki í jarðvegi og er veruleg ógnun við lífríkið og náttúruna. Hluti af verkefni vetrarins var að ræða hvað gæti komið í staðinn fyrir plast og hvort alltaf þyrfti að nota plast. Þeir sem unnu í verkefninu komust að því að margt væri hægt að gera til að sporna við plastmagninu, nota t.d. fjölnota innkaupapoka, sleppa því að setja grænmeti og ávexti í plastpoka, valið vörur eftir magni umbúða og með því að setja plastið í endurvinnslu og reyna að endurnýta sem mest af því plasti sem kemur með neysluvörum.
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…