Fögnuðu fjölmenningunni á Álfaberg í dag

Fréttir

Börnin á leikskólanum Álfabergi héldu upp á fjölmenningardag í annað sinn fyrr í dag. Þau gerðu vegabréf og fána. Foreldrar komu með bakkelsi og leikföng frá ólíkum löndum. Átján börn af áttatíu eiga sér annað móðurmál en íslensku. Vel er haldið utan um hópinn.

Fjölmenningardagur í Álfabergi

„Þetta var frábært. Börnin fóru á milli deilda með heimagerð vegabréf og fengu stimpil í þau inn á hverri deild. Þetta var upplifun fyrir börnin og foreldra þeirra,“ segir Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir, leikskólastjóri Álfabergs, um fjölmenningardag leikskólans sem haldinn var nú í morgun. Hún lýsir deginum betur.

„Foreldrar komu með heimabakað, lítið smakk og leikföng frá ólíkum löndum. Þau bjuggu til fána og sungu Meistari Jakob á mörgum tungumálum. Þetta var meiriháttar dagur,“ segir Lilja en þetta er í annað skiptið sem alþjóðlegi dagurinn er haldinn með markvissum hætti á Álfabergi.

Átján af áttatíu börnum í Álfabergi eiga sér annað móðurmál en íslensku. Linda Björk Halldórsdóttir, aðstoðarskólaskólastjóri, heldur utan um þjónustuna við þau og tryggir að vel séð hlúð að börnunum og fjölskyldum þeirra.

„Við hér í Álfabergi leggjum mikla áherslu á snemmtæka íhlutun í málörvun og kennslu. Við gerum hæfniramma og komum til móts við hvert og eitt barn. Við notum til að mynda aðferðina, Gefðu 10 til að efla málþroska,“ segir hún og lýsir því hvernig leikskólinn starfi þétt með brúarsmiðum Hafnarfjarðar.

„Við vinnum virkilega vel með brúarsmiðunum og hikum ekki við að biðja þá að aðstoða okkur svo foreldrarnir verði öruggari í samfélagi okkar. Það skiptir máli að mynda góð tengsl við þau svo börnunum vegni sem best.“

Hún segir mikilvægt að bera virðingu fyrir því hvaða börnin koma. „Við tölum um fjölbreytileikann og fögnum honum. Segjum börnunum hvað er gaman að tala ólík tungumál. Við lærum til dæmis að segja góðan daginn á þeim tungumálum sem töluð eru á hverri deild. Við höfum einnig fána barnanna sýnilega á veggjum skólans og fyrir framan hverja deild og hvernig góðan daginn er skrifað í þeim löndum. Þannig vitum við hve mörg móðurmál eru töluð á hverri deild,“ lýsir hún.

Linda segir þetta annað árið í röð starfsfólki Álfabergs með íslensku sem annað tungumál sé boðið að læra íslensku á vinnutíma í Íslenskuþorpinu í gegnum Menntafléttuna. Tveir í fyrra og tveir í ár. „Þar lærir starfsfólkið fagorð leikskólastarfsins,“ segir hún.

„Við stjórnendur erum mentorar þeirra í tengingu við íslenskuþorpið og við fundum reglulega þar sem ég aðstoða það í náminu. Við ræðum saman og það lærir að vinna með sögur og tónlist fyrir börnin. Námið er hagnýtt og hefur haft mjög góð áhrif og starfsfólkið ánægt. Þetta starf skilar sér klárlega til allra barnanna okkar,“ segir Linda að lokum.

Svo nú segjum við góðan fjölmenningardag!

Ábendingagátt