Sveitarstjórnarkosningar 2026 – Niðurstöður

Fréttir

Sveitarstjórnarkosningar fóru fram á landsvísu laugardaginn 16. maí. Alls setjast 6 nýir fulltrúar í bæjarstjórn. Sjáðu úrslitin.

Sveitarstjórnarkosningar 2026 – Niðurstöður

Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði hér í Hafnarfirði í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum eða 27,7% atkvæða. Framsóknarflokkurinn fékk 24,3%, Samfylkingin 17,8%, Viðreisn 14,3%, Miðflokkurinn 11,4% og Vinstrið 4,4%. Kosningarnar voru haldnar laugardaginn 16. maí.

Sjálfstæðisflokkurinn (D) missti einn bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum með 2,9 minna fylgi en þá, Framsóknarflokkurinn (B) bætti við sig einum en jók fylgið um 10,6%. Samfylkingin (S) tapaði tveimur og missti 11,2% fylgis síns frá því síðast var kosið. Viðreisn (C) bætti við sig einum og jók fylgið um 5,1%. Miðflokkurinn (M) fékk einn kosinn og jók fylgið um 8,6%. Vinstrið (A) kom ekki að manni í bæjarstjórn og bauð fram í fyrsta sinn.

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir (D) og Árni Rúnar Þorvaldsson (S) kveðja fasta sætið sitt í bæjarstjórn. Jón Ingi Hákonarson (C) og Margrét Vala Marteinsdóttir (B) kveðja alveg.  Ný inn verða Karólína Helga Símonardóttir (C), Kolbrún Magnúsdóttir (B), Einar Geir Þorsteinsson (M), Viktor Pétur Finnsson (D), Árni Rúnar Árnason (B) og Árni Stefán Guðjónsson (C).

Ellefu fulltrúar skipa bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar. Alls voru 24.593 á kjörskrá. Kjörsókn var 64,2%.

Bæjarfulltrúar okkar Hafnfirðinga næstu fjögur árin verða:

  • Orri Björnsson – D
  • Valdimar Víðisson – B
  • Karólína Helga Símonardóttir – C
  • Kristín Thoroddsen – D
  • Kolbrún Magnúsdóttir – B
  • Einar Geir Þorsteinsson – M
  • Viktor Pétur Finnsson – D
  • Hildur Rós Guðbjargardóttir – S
  • Árni Rúnar Árnason – B
  • Árni Stefán Guðjónsson – C
  • Árni Rúnar Þorvaldsson – S

Uppfært / Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Inn kemur Árni Rúnar Þorvaldsson. 

Ábendingagátt