Um 200 á fundi um fyrstu leikskóladvölina
Um 200 manns mættu á foreldrafund um leikskólamál í gærmorgun. Um 330 börn hefja í fyrsta sinn leikskóladvöl í leikskólum Hafnarfjarðar í haust. Foreldrarnir fengu allar helstu upplýsingar á einu bretti.
Í leikskóla er gaman
Um 200 manns mættu á foreldrafund mennta- og lýðheilsusviðs í veislusal Hauka í gærmorgun. Um 330 börn hefja í fyrsta sinn leikskóladvöl í leikskólum Hafnarfjarðar í haust. Foreldrarnir fengu að vita allt um hvernig dagur barnsins verður og hvers er að vænta þegar börnin fara í leikskóla.
Líf var í salnum því margir foreldrar tóku litlu hnoðrana með sér. Fundurinn mæltist vel fyrir og stefnt verður að því að hafa svona fund á hverju vori hér eftir.
Starfsmenn sem sýsla með leikskólamál bæjarins héldu erindi. Einnig voru brúarsmiðir á staðnum til þess að vera foreldrum með erlendan bakgrunn til halds og trausts.
Ýmsar hagnýtar upplýsingar komu fram á fundinum og foreldrarnir fengu ráð:
Gott að vita um leikskólann
- Aðlögun er tími þar sem barn og foreldrar kynnast leikskólanum saman.
- Hún er símalaus tími.
- Foreldrar kynnast starfsfólki og daglegu starfi deildarinnar.
Starfsfólk kynnast foreldrar og barn. - Ró og traust foreldra hjálpar barninu að finna öryggi.
- Við hvetjum foreldra til að taka þátt í leik og starfi með barninu.
- Gott er að heimsækja leiksvæði leikskólans áður en aðlögun hefst.
Lýst var hvernig foreldrafundir fara fram, sagt frá foreldrafræðslukvöldum og foreldraviðtölum. Foreldrar voru upplýstir um að þeir fengu föstudagspósta frá deildarstjóra.
Vala um formlegu samskiptin
Foreldrum var sagt frá Völu, þar sem formleg samskipti fara fram og veikindi barna eru tilkynnt. Þar megi einnig finna ýmsar upplýsingar og matseðil, hægt að hringja og senda sms.
Þeir fengu einnig að vita um hvernig dagur á leikskólum sé skipt upp í fagstarf og frjálsan tíma og að fagstarfið fari fram milli 9-15 hvern dag. Þeir voru fræddir um að skólastarfið stæði í 180 daga á ári. Aðrir dagar væru skráningadagar og þeim sagt hvernig það virkar.
Foreldrunum var sagt frá sex tíma gjaldfrjálsum leikskóla en frá síðustu áramótum var tekin upp sú stefna að börn sem dvelja sex tíma eða skemur greiði aðeins fyrir fæði. Sjá nánar hér. Þeim var einnig sagt hvernig hægt væri að sækja um flutning barnsins milli leikskóla.
Börnin fá líka sumarfrí
Börn í leikskólum Hafnarfjarðar taka fjögurra vikna samfellt sumarleyfi yfir sumartímann. Leikskólar loka í þrjár vikur, yfirleitt um miðjan júlí og framyfir verslunarmannahelgi. Einn leikskóli sé þó með sumaropnun í eina viku og lokar því í tvær í stað þriggja. Þar geta börn úr öðrum skólum fengið vistun.
Á fundinum var einnig farið yfir menntastefnu Hafnarfjarðarbæjar og farsæld barna, þar sem þjónustan er samþætt barninu í hag. Þeir fræddust einnig um stoðþjónustu bæjarins.
Ókeypis túlkaþjónusta í boði
Já, þjónusta bæjarins miðar að því að bæta líf íbúa. Allir foreldrar eiga rétt á ókeypis túlkaþjónustu. Foreldrunum var um leið bent á að rannsóknir sýni að börnum þeirra sem læra tungumál samfélagsins gangi betur að læra og aðlagast. Til að allt gangi sem allra best sé bærinn með brúarsmiði milli menningarheima. Þeir styðji fjölskyldur og hjálpi við aðlögun og upplýsingagjöf.