Hafnarfjörður
  • Þjónusta
    Close sub menu button
    • Íþróttir og útivera

      Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.

      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Íþróttir og tómstundir
      • Leik- og boltavellir
      • Matjurtagarðar
      • Sumarnámskeið
      • Sundlaugar
    • Skóli og frístundastarf

      Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.

      • Dagforeldrar
      • Félagsmiðstöðvar
      • Frístundaheimili
      • Frístundastyrkur
      • Frístundaakstur
      • Grunnskólar
      • Heimgreiðslur
      • Leikskólar
      • Menntastefna
      • Tónlistarskólar
      • Ungmenni
    • Umhverfi og samgöngur

      Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.

      • Dýr
      • Hávaði
      • Hreinsun og umhirða
      • Nágranna­varsla
      • Sorphirða
      • Strætó
      • Veðrið í bænum
      • Veitur
      • Þjónustumiðstöð
    • Velferð

      Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.

      • Barnavernd
      • Eldra fólk
      • Fólk með fötlun
      • Félagsleg úrræði
      • Fjölmenning
    • Farsæld barna

      Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.

    • Þjónustuver

      Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.

  • Mannlíf
    Close sub menu button
    • Menning og listir

      Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.

      • Árlegir viðburðir
      • Bókasafn
      • Byggðasafn
      • Bæjarbíó
      • Bæjarlistamaður
      • Hafnarborg
      • Menningarstyrkir
      • Kórsjóður Hafnarfjarðar
    • Ferðaþjónusta

      Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.

      • Gististaðir
      • Tjaldsvæði
      • Upplýsingamiðstöð
    • Heilsubærinn

      Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.

      • Íþróttafólk ársins
      • Áhugaverðir staðir
      • Frístundastyrkir barna
      • Frístundastyrkir eldra fólks
      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Leik- og boltavellir
      • Sundlaugar
      • Sumarnámskeið
      • Veðrið í bænum
    • Viðburðir

      Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.

    • Menningararfur

      Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.

      • Álfa- og víkingabær
      • Brandarabærinn
      • Jólabærinn
      • Menningarbærinn
      • Saga Hafnarfjarðar
      • Vinabærinn
  • Framkvæmdir
    Close sub menu button
    • Byggingarmál

      Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.

      • Byggingarmál
      • Fyrirspurnir og viðtöl
      • Eyðublöð byggingarmála
      • Leiðbeiningar um rafræn skil gagna byggingarmála
      • Fasteignagjöld
    • Kort af bænum

      Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.

    • Lausar lóðir

      Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.

      • Atvinnuhúsnæði
      • Hesthús
      • Íbúðarhúsnæði
      • Lóðarleigusamningar
    • Skipulag

      Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.

      • Aðalskipulag
      • Framkvæmdir
      • Skipulag í kynningu
      • Uppbygging
      • Samgöngusáttmáli
      • Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar
    • Afnotaleyfi

      Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.

  • Stjórnsýsla
    Close sub menu button
    • Atvinna og mannauður

      Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.

      • Laus störf
      • Símatími
      • Starfsfólk
      • Störf í leikskólum
      • Störf í tómstundamiðstöðvum
      • Vinnuskólinn
      • Starfsvottorð
    • Bæjarstjórn

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu. 

      • Bæjarstjóri
      • Bæjarstjórn
      • Fundur í beinni
      • Ráð og nefndir
    • Fundargerðir

      Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.

    • Rekstur og tölfræði

      Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.

      • Ársreikningar
      • Fjárhagsáætlanir
      • Húsnæðismál
      • Íbúakannanir
      • Opið bókhald
      • Umferð um vefinn
      • Vitinn hönnunarkerfi
    • Gjaldskrár

      Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.

    • Stjórnkerfi

      Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.

      • Barnvænt sveitarfélag
      • Hafðu áhrif
      • Heildarstefna Hafnarfjarðar
      • Neyðarnúmer
      • Neyðarstjórn
      • Persónuvernd
      • Ráð og nefndir
      • Stefnur og samþykktir
      • Þóknanir kjörinna fulltrúa
      • Skipurit
      • Styrkir
      • Útboð
    • Fréttir og skýrslur

      Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.

      • Fjölmiðlatorg
      • Fréttir og tilkynningar
      • Reglur um samfélagsmiðla
      • Skýrslur
      • Verkefnasögur
      • Útgefið efni
Mínar síður
IS
  • English
Toggle Mobile Menu
Sumarstörf
  • Störf hjá Hafnarfjarðarbæ
  • Störf í leikskólum
  • Störf í tómstundamiðstöðvum
  • Mannauðsstefna
  • Jafnréttis- og mannréttindastefna
  • Hlunnindi
  • Nýtt starfsfólk hjá Hafnarfjarðarbæ

Sumarstörf

Skoða öll störf
Ábendingagátt Aðstoð
  • Fundargerðir
  • Netspjall
  • Neyðarnúmer
Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær

Strandgata 8–10

220 Hafnarfjörður

Kennitala: 590169-7579

  • facebook
  • instagram

Hafðu samband

Opið mán.–fimmtudaga: 08:00–16.00

Opið föstudaga: 08:00–14:00

585 5500

hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

  • facebook
  • instagram

Flýtileiðir

  • Ábendingagátt
  • Laus störf
  • Betri Hafnarfjörður
  • Gjaldskrár
  • Starfsfólk
  • Neyðarnúmer

Verkstjóri garðyrkju – Þjónustumiðstöð

Umsóknarfrestur

02.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 04.09.2026

Umsóknarfrestur til: 02.10.2026

Tengiliður: hafsteinnv@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkstjóra í garðykju hjá þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi.

Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kemur að verkstýringu á tækjamönnum, öðru starfsfólki og verktökum sem við á, t.d. sumarstarfsmönnum. Ber ábyrgð á þeim verkefnum sem honum er falið hverju sinni
  • Viðhald, eftirlit og umsjón með gróðri á opnum svæðum. Kemur að vali á plöntum og ráðgjöf um gróður, jarðveg og umhirðu
  • Viðhald, eftirlit og umhirða á gróðri á opnum svæðum
  • Viðhald, viðgerðir og eftirlit á útibekkjum, borðum og bekkjum, flaggstöngum, fánaborgum, trjágrindum og uppbindingum o.fl.
  • Ýmis vinna vegna jólaskreytinga, hátíðarhalda, kosninga og ýmissa viðburða á vegum bæjarins 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinpróf í skrúðgarðyrkju/garðyrkju
  • Reynsla af sambærilegum störfum svo sem garðyrkju- og umhverfisstörfum 
  • Reynsla af stjórnunarstörfum kostur 
  • Reynsla af akstri stærri ökutækja og vinnuvéla
  • Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér og hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í orði og riti
  • Aukin ökuréttindi á vörubifreið yfir 3.500 kg kostur.
  • Vinnuvélaréttindi á stærri tæki

Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: hafsteinnv@hafnarfjordur.is 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 2. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur tímabundin afleysingastörf

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.

Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í leikskólum

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 16.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.

Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera

með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Umsóknarfrestur

14.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 29.09.2026

Umsóknarfrestur til: 14.10.2026

Tengiliður: arorab@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann á búsetukjarna fyrir fatlað fólk, sem staðsettur er miðsvæðis í bænum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi 60% framtíðarstarf í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur 14. október 2026. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina – úrræði fyrir fatlað fólk

Umsóknarfrestur

05.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 28.09.2026

Umsóknarfrestur til: 05.10.2026

Tengiliður: Þórdís Rúriksdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% framtíðarstarf með fjölbreyttum verkefnum. Hefðbundin dagvinna frá 8- 16 eða 8:30-16:30.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Veitir stuðning og fylgd í vinnu og virkni
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sveigjanleiki í starfi

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli

Umsóknarfrestur

08.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.09.2026

Umsóknarfrestur til: 08.10.2026

Tengiliður: Margrét Rebekka Valgarðsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilinu Hraunkoti.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.–4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunkot. Þar sem boðið er upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl.16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Margrét Rebekka Valgarðsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla, í síma 664-5876 eða í gegnum netfangið margretr@vidistadaskoli.is og Arnór Heiðarsson arnor@vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás

Umsóknarfrestur

08.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.09.2026

Umsóknarfrestur til: 08.10.2026

Tengiliður: hrundb@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann til starfa við þjónustu á heimili fyrir fatlað fólk.

Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi.

Í boði er spennandi og fjölbreytt starf í vaktavinnu. Um er að ræða 80–100% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta unnið dag-, kvöld- ,nætur- og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall  ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið hrundb@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5764.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Skóla- og frístundaliði, Bjarg – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

02.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 22.09.2026

Umsóknarfrestur til: 02.10.2026

Tengiliður: kristinn@hvaleyrarskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í Bjarg í 70% starf út skólaárið 2026-2027.

Ráðið er í stöðuna sem fyrst.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í Bjargi sem er deild innan skólans fyrir nemendur í leit að alþjóðlegri vernd. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Í Hvaleyrarskóla eru um 350 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus og markvissar málörvunar ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er stuðningur við börn í kennslustundum og á opnum svæðum
  • Vinnur náið með kennurum í Bjargi (deild fyrir nemendur er óskað hafa alþjóðlegrar verndar)
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
  • Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
  • Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Spænskukunnátta er kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664-5833, Friðþjófur Helgi Karlsson, deildarstjóri Bjargs, fridthjofurk@hvaleyrarskoli.is í síma 863 6810 eða í síma skólans 565-0200.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður í einstaklingsstuðningi – tímavinna

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 22.09.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Miðað er við að umsækjandi þurfi að vera orðinn 20 ára. 

Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð enskukunnátta 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi. Athugið að ekki er ráðið í einungis sumarstarf. 

Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500. 

Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Leikskóla og frístundaliði – Hraunvallaleikskóli

Umsóknarfrestur

06.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 22.09.2026

Umsóknarfrestur til: 06.10.2026

Tengiliður: Pálína Hildur Sigurðardóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaleikskóli leitar að starfsfólki í leikskóla í 100% starf.

Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem hafa reynslu af vinnu með börnum.  

Hraunvallaleikskóli er fjögra deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum.
  • Tekur þátt í faglegu starfi undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinnur í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af leikskólastarfi eða öðrum störfum með börnum æskileg.
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar.
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni, lausnamiðun og sveigjanleiki.
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur leikskólastjóri palinas@hraunvallaskoli.is eða Ásrún aðstoðarleikskólastjóri asrunst@hafnarfjordur.is

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið. 

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennari – Hraunvallaleikskóli

Umsóknarfrestur

06.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 22.09.2026

Umsóknarfrestur til: 06.10.2026

Tengiliður: palinas@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í fullt starf

Hraunvallaleikskóli er fjögra deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og að allir hafa sama tækifæri til náms. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn.

Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.

Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.

Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur Sigurðardóttir, leikskólastjóri, palinas@hraunvallaskoli.is og Ásrún Sigrid Steindórsdóttir Olsen, aðstoðarleikskólastjóri, asrunst@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Öldutúnsskóli

Umsóknarfrestur

05.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 21.09.2026

Umsóknarfrestur til: 05.10.2026

Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi

Um er að ræða tímabundna afleysingastöðu út skólaárið.

Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1.-10. bekk.

Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem leitast er við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti og öflugt samstarf. Teymisvinna og teymiskennsla skipa veigamikinn sess í skólastarfinu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og starf skólans grundvallast á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætluninni gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Einnig er lögð rík áhersla á umhverfismál.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og umsjón með nemendum á yngsta stigi
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að námi og velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
  • Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Starfa í samræmi við stefnu og gildi skólans
  • Stuðla að góðum starfsanda og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi æskileg
  • Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu skólaumhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, að lágmarki á hæfniþrepi C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita

Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894 eða með tölvupósti á margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is

Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, með tölvupósti á aslaughr@oldutunsskoli.is

Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Deildarstjóri – Leikskólinn Hvammur

Umsóknarfrestur

01.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 17.09.2026

Umsóknarfrestur til: 01.10.2026

Tengiliður: Guðrún Edda Bjarnadóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Hvammur leitar að deildarstjóra í 100% starf.

Hvammur er 6 deilda leikskóli á skjólsælum og fallegum stað við Staðarhvamm 23 í Hafnarfirði, rétt ofan við Suðurbæjarlaug.

Einkunnarorð leikskólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
  • Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er kostur/æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gudrunedda@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar við Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2026

Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sérkennslustjóri – Leikskólinn Hvammur

Umsóknarfrestur

01.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 17.09.2026

Umsóknarfrestur til: 01.10.2026

Tengiliður: gudrunedda@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Hvammur leitar að sérkennslustjóra í 100% starf.

Hvammur er 6 deilda leikskóli á skjólsælum og fallegum stað við Staðarhvamm 23 í Hafnarfirði, rétt ofan við Suðurbæjarlaug.

Einkunnarorð leikskólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans
  • Að vera faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra
  • Að hafa umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
  • Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni 
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf. 
  • Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun (M.ed) í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af vinnu við sérkennslu
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Reynsla af að vinna í teymum
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gudrunedda@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 2.október 2026.

 Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sérkennari/þroskaþjálfi – Leikskólinn Hörðuvellir

Umsóknarfrestur

01.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 17.09.2026

Umsóknarfrestur til: 01.10.2026

Tengiliður: Sverrir Jörstad Sverrisson

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Hörðuvellir óskar eftir að ráða sérkennara/þroskaþjálfa í 100% starf.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.

Starfið er laust frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna með sérþarfir
  • Gerir áætlanir, sinnir þjálfun, leiðsögn og stuðningi barna með sérþarfir
  • Skipuleggur og heldur utan um sérkennslu í nánu samstarfi við sérkennslustjóra
  • Er í samstarf við foreldra og fagaðila um velferð barnsins
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson síma 5550721 eða á netfanginu sverrirs@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2026.

Greinargóð ferilskrá og eða leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ eða Þroskaþjálfafélag Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir

Umsóknarfrestur

30.09.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 16.09.2026

Umsóknarfrestur til: 30.09.2026

Tengiliður: sverrirs@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í fullt starf

Við á Hörðuvöllum erum að leita að kraftmiklum og reynslumiklum leikskólakennara sem vill gera hvern dag að ævintýri fyrir börn!

Ef þú elskar leik, sköpun og samvinnu og vilt vinna í frábæru teymi þar sem gleði, virðing og fagmennska eru í fyrirrúmi, þá viljum við heyra frá þér. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, tækifæri til starfsþróunar og stuðning í starfi – og auðvitað kaffi og hlátur alla daga.

Vertu hetjan sem börnin okkar bíða eftir!

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara, hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaða einstaklinga eða einstaklinga með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson leikskólastjóri, sverrirs@hafnarfjordur.is  eða í síma 555-0721

Umsóknarfrestur til og með 30. september 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Afleysingastörf – Málefni fatlaðra

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.