Vinnuskólinn

Vinnuskóli Hafnarfjarðar býður unglingum bæjarins upp á skemmtilega og fræðandi sumarvinnu.

Vinnutími og tímabil

Umsókn

Vinnutímabil

Vinnutímabilið hefst fimmtudaginn 11.júní en vegna ólíkrar tímaúthlutunar eftir aldri þá endar það á mismunandi tímum.

8.bekkur starfar frá 11.júní – 16.júlí

9.bekkur starfar frá 11.júní – 16.júlí

10.bekkur starfar frá 11.júní – 13.júlí

17 ára ungmenni í miðbæjarhóp hafa tækifæri til 30.júlí til að ljúka við sína tíma.

Vikuna 20-24.júlí verður veitt tækifæri til þess að vinna upp óunna tíma á hefðbundnum dagtíma fyrir þá sem hafa áhuga á.

Vinnutími

Daglegur vinnutími unglinga fer eftir aldri.

Vinnutími hjá 14 ára unglingum eru 3,5 tímar á dag, mánudaga til fimmtudaga (14 tímar á viku). Aðra hverja viku er unnið fyrir hádegi (kl. 08:30-12:00) og hina eftir hádegi (kl. 12:30-16:00).

Vinnutími 15 ára unglinga eru 3,5 tímar á dag, mánudaga til fimmtudaga. Einhverjar undantekningar eru á því en í undirbúningi og frágangi í kringum 17.júní verður starfað í 7 klst á dag, frá 08:30 – 12:00 og 12:30 – 16:00.   Síðustu þrjá dagana verða einnig unnir heilir dagar frá 08:30 – 12:00 og 12:30 – 16:00. Þetta gerum við til þess að veita öllum tækifæri til þess að ná tilskyldum vinnutímum.

Lengri dagar eru eftirfarandi: 15, 16 -og 18.júní og síðan 14. – 16.júlí.

Vinnutími hjá 16 ára unglingum eru 7 tímar á dag frá mánudegi til fimmtudags. Fyrir hádegi er unnið frá kl 08:30-12:00 og eftir hádegi frá kl 12:30-16:00.

Vinnutími hjá 17 ára unglingum eru 7 tímar á dag frá mánudegi til fimmtudags og unnið er  frá kl. 08:30 – 12:00 og 12:30-16:00

Matartími telst ekki sem vinnutími. Ekki er leyfilegt að fara fram yfir heildartíma.

Tímar yfir sumarið

  • 14 ára unglingar vinna 71 tíma.
  • 15 ára unglingar vinna 92 tíma.
  • 16 ára unglingar vinna 118 tíma.
  • 17 ára unglingar vinna 193 tíma.