Litla Gallerý – Tilfinningafluga // María Rún
Tilfinningafluga ég spegla mig í vængjum þínum tilfinningafluga hann brotnar upp í pastellitaðar minningar æskunnar ég sker mig og rispa…
Ljósmyndaáhugi Svavars G. Jónssonar hefur nú leitt af sér að hann á vel á sjötta hundrað filmuvéla, sú elsta frá árinu 1896. Hann ætlar að sýna safnið á veitingastaðnum Ban Kúnn á Safnanótt 2025, þann 7. febrúar og segja sögur.
„Upphaf þessa safns má rekja til „ljósmyndadellu“ sem ég fékk um fermingu! Já, það eru að verða 60 ár síðan, svo það kennir ýmissa grasa í safninu,“ segir Svavar. Ljósmyndavélarnar hans eru frá árinu 1896 til dagsins í dag. Þar á meðal myndavélin sem hann keypti fyrir fermingarpeningana sína.