Vika félagsmiðstöðva og ungmennahúsa

Fréttir

Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan er haldin hátíðleg dagana 17.-23. október. Vikan hefur það að markmiði að varpa ljósi á mikilvægi og virði þessa vettvangs fyrir börn og ungmenni með hvatningu um að sem flestir (foreldrar, forráðamenn, systkini, vinir og aðrir aðstandendur) kynni sér starfsemi stöðvanna í sínu hverfi.

Vikan varpar ljósi á mikilvæg og virði þessa vettvangs fyrir börn og ungmenni

Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan er haldin hátíðleg dagana 17.-23. október. Vikan hefur það að markmiði að varpa ljósi á mikilvægi og virði þessa vettvangs fyrir börn og ungmenni með hvatningu um að sem flestir (foreldrar, forráðamenn, systkini, vinir og aðrir aðstandendur) kynni sér starfsemi stöðvanna í sínu hverfi. Starf félagsmiðstöðva og ungmennahúsa er í eðli sínu forvarnarstarf og hefur starfsfólk félagsmiðstöðvanna lagt ríka áherslu á að skapa einstaka menningu og umhverfi með sínum börnum og ungmennum.

 

Hlutverk félagsmiðstöðva

Hlutverk félagsmiðstöðva er að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Það er mikilvægt að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi. Áhersla er lögð á að virkja börn og unglinga til virkrar þátttöku og framkvæmda í starfinu. Félagsmiðstöðvarstarfið er fjölbreytt og er dagskrá unnin með ungmennum. Þær standa einnig að stærri viðburðum eins og Grunnskólahátíð, söngvakeppni, Hafnarfjarðarstíl og spurningarkeppninni Veistu svarið svo eitthvað sé nefnt. Einnig taka þau þátt í stærri viðburðum á landsvísu eins og Söngvakeppni Samfés, Samfestingnum og Rímnaflæði. Starfsfólk félagsmiðstöðvanna reyna að hvetja börn og ungmenni til að fylgja sínum styrkleikum enda meiri líkur á því að einstaklingurinn blómstri þegar hann finnur áhugamál við hæfi. Eitt af því sem félagsmiðstöðvar leggja mikinn metnað í er þátttaka unga fólksins og eru þau höfð eftir fremsta megni með í ráðum og hvött til lýðræðislegrar þátttöku.

Allt um félagsmiðstöðvarnar í Hafnarfirði

Félagsmiðstöðvar í öllum hverfum við alla grunnskóla

Félagsmiðstöðvar eru starfræktar í öllum hverfum við alla níu grunnskóla sveitarfélagsins. Félagsmiðstöðin Dalurinn við Engidalsskóla er nýjasta viðbótin og þjónustar hún börn á miðstigi. Frístundaklúbbarnir Kletturinn og Vinaskjól í Húsinu Suðurgötu 14 bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir börn og ungmenni með fötlun. Í Hafnarfirði eru einnig starfrækt tvö ungmennahús. Annarsvegar Hamarinn á Suðurgötu með starfsemi fyrir 16 – 25 ára og hins vegar Músík og mótor á Dalshrauni með starfsemi fyrir 13 – 25 ára.

Nýjasta viðbótin í Hafnarfirði er HHH – Hinsegin hittingar Hafnarfjarðar

Hinsegin hittingur Hafnarfjarðar hóf göngu sína í febrúar sl. og hefur verið haldin í Vitanum Lækjarskóla. Hittingurinn er hugsaður fyrir ungmenni á aldrinum 13-16 ára sem skilgreina sig hinsegin, á einhvern hátt, eru í hinsegin pælingum, áhugasöm um hinsegin málefni eða langar að koma í félagsmiðstöð þar sem öll börn og ungmenni eru velkomin, með eða án nokkurrar skilgreiningar. Undirbúningur að hittingum í Hafnarfirði kviknaði í kjörfar fyrirspurna frá áhugasömum ungmennum, foreldrum og forráðamönnum.  Eins og er þá eru hittingarnir aðra hverja viku á fimmtudagskvöldum. Einnig er að fara af stað hittingar fyrir börn á miðstigi.

Vettvangur fyrir spjall og samveru í öruggu og hlýlegu umhverfi

Fyrirmynd framkvæmdarinnar í Hafnarfirði er Hinsegin félagsmiðstöðin í Reykjavík þar sem hittingar og hópastarf hafa gengið framar vonum. Um 11% þeirra sem sótt hafa starf félagsmiðstöðvarinnar í Reykjavík koma frá Hafnarfirði og getur þessi hópur nú sótt hinsegin félagsstarf í sínum heimabæ. Um nokkurt skeið hefur verið boðið upp á Hinsegin kvöld, annan hvern þriðjudag í ungmennahúsinu Hamrinum, sem ætluð eru 16-25 ára.  Auk þess hefur Bókasafn Hafnarfjarðar staðið fyrir Hinsegin kvöldum sem hugsuð eru fyrir breiðari aldur.  Í hinsegin hittingum fá ungmennin tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum í öruggu og hlýlegu umhverfi. Starfið byggir að stórum hluta á jafningjafræðslu og að skapa ungu fólki stað þar sem þau upplifa öryggi og fái svigrúm til að vera fyrst og fremst unglingar.

Hamarinn og Músik og mótor sinna félagsstarfi fyrir eldri ungmenni

Þegar hafnfirsk ungmenni komast á framhaldsskólaaldur fá þau tækifæri til að sækja Ungmennahúsið Hamarinn sem er staðsett að Suðurgötu 14 og er opið frá kl. 9-23 alla virka daga. Þar eiga ungmenni í Hafnarfirði öruggt rými þar sem þau stýra verkefnum og dagskrá í samráði við starfsfólk. Í Hamrinum er aðstaða til að læra, njóta, fara í pool eða fá ráðgjöf frá Berginu Headspace og Samtökunum 78. Þar er skipulagt starf í kringum spunaspil, handavinnu, útivist og fleira. Einnig er aðstaða til að funda, hópaverkefna og lærdóms. Á daginn er starfandi kennari í Hamrinum sem getur aðstoðað við heimanám (ekki dönsku og þýsku). Hægt er að finna Hamarinn á Facebook og Instagram til að fylgjast með starfinu þar og öllu því sem í boði er á þeirra vegum.

Vettvangur fyrir listsköpun og viðgerðir

Músik og mótor er félagsmiðstöð sem staðsett er í gömlu lakkrísgerðinni að Dalshrauni 10. Þar er hægt að fá herbergi til afnota til að sinna allskonar listsköpun eins og fyrir hljómsveitir að æfa, myndlistarfólk að skapa eða hvað sem er sem krefst pláss. Þar er hljóðupptökuver og tekur Biggi fagnandi á móti öllu ungu fólki sem vill taka upp tónlist sína. Hann sér um upptökur, hljóðvinnslu og eftirvinnslu. Einnig er í Músik og mótor stór bílskúr þar sem hægt er að finna tól og tæki til að taka í sundur mótorhjól, bíla og í raun hvað sem er og setja aftur saman. Músik og mótor er opið alla virka daga frá kl. 15 – 22. Músik og mótor er líka á Facebook og Instagram.

Allt um ungmennahúsin í Hafnarfirði

Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi er mikilvæg forvörn

Sýnt hefur verið fram á að þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi skiptir miklu máli fyrir framtíð barna og ungmenna, það hefur verið talin einn af verndandi þáttum í þeirra lífi. Þau ungmenni sem taka þátt í skipulögðu starfi eru ólíklegri en önnur börn, til að nota áfengi, tóbak og vímuefni. Það skiptir ekki máli hvort um ræðir íþróttir, dans, tónlist, skátastarf eða félagsmiðstöðvastarf. Þau ungmenni sem taka þátt í skipulögðu starfi eru líklegri til að standa sig betur í skóla, líða betur, hafa jákvæðari líkamsvitund og meiri sjálfsvirðingu.

Kynnið ykkur starf félagsmiðstöðvanna

Hafnarfjarðarbær hvetur aðstandendur til að kynna sér starf félagsmiðstöðvanna ásamt því að hvetja börn og ungmenni að nýta sér þjónustuna og þakkar á sama tíma starfsfólki, börnum og ungmennum fyrir þeirra framlag í mótun á félagsstarfi og umgjörð sem einkennist af einstöku andrúmslofti, áhuga, metnaði og umfram allt gleði!

Ábendingagátt