7000 manns á sólmyrkvahátíð Bjarkar á Víðistaðatúni
Búist er við sjö þúsund gestum á tónlistarhátíðina Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu sem haldin verður 12. ágúst á Víðistaðatúni. Allir samningar undirritaðir og undirbúningur í fullum gangi og það er uppselt á hátíðina!
Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni
„Já, það er uppselt,“ segir Alexis Garcia, hjá Garcia Events sem samið hefur við Hafnarfjarðarbæ um að halda tónlistarhátíð á Víðistaðatúni þegar sólmyrkvinn gengur yfir, 12. ágúst. Hátíðin er einstök.
„Þarna munu 7000 manns njóta þess að fylgjast með Björk þeyta skífum. Þetta er raftónlistarhátíð og 80% gestanna koma erlendis frá,“ segir Alexis.
„Og þeir koma raunverulega alls staðar að; Ástralíu, Brasilíu, Kólumbíu, Bandaríkjum og löndum Evrópu. Þetta er frábært,“ segir Alexis. En veðrið?
„Við getum lítið stjórnað því, en öllum miðum fylgja sérhönnuð sólmyrkvagleraugu sem við hönnuðum með Björk og Dóu dóttur hennar, en hún sér um myndheiminn í kringum hátíðina.“
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri segir það einstaklega ánægjulegt að fylgjast með blómlegu menningarlífi í Hafnarfirði fyrstu dagana í starfi.
„Það er alveg ljóst að hér í Hafnarfirði gerast ævintýrin. Hafnfirðingar mega svo sannarlega vera stoltir af þróuninni síðustu ár. Ég óska Smekkleysu til hamingju með 40 árin og hlakka virkilega til að sjá Björk hér í Hafnarfirði.“
Alexis lýsir því hvernig gestir geti sest niður í listasmiðjum á svæðinu og hannað sína eigin grímu í anda Bjarkar. „Björk er jú alltaf með sérhannaðar grímur,“ segir Alexis.
Mótshaldarar séu spenntir. „Við erum mjög spennt, þetta er einstakur viðburður og þeir sem mæta munu aldrei upplifa annan eins. Þetta er einstakt á heimsvísu. Áhuginn er mjög mikill og gífurlegt magn af erlendum fjölmiðlamönnum sem vilja koma.“
Alexis segir Víðistaðatún henta viðburðinum afar vel. „Það er flókið að finna flöt á höfuðborgarsvæðinu þar sem þetta er hægt. Víðistaðatún sem viðburðasvæði er rúmt og Hafnarfjarðarbær hefur verið hjálplegur að láta allt ganga upp. Allt hefur gengið svo vel,“ segir hann.
„Við vinnum eftir fremsta megni að því að upplýsa íbúa hverfanna í kring og förum í íbúakynningu á næstunni. Ég vona að Víðistaðatún verði svona viðburðastaður í framtíðinni. Þetta er eðalsvæði fyrir svona viðburð. Umhverfið er svo fallegt og nóg af flóttaleiðum þótt hraun og hólar rammi svæðið gullfallega inn.“
Fram koma auk Bjarkar:
- Arca (dj) frá Venesúela
- Ronja
- Sideproject
- Þá verða fleiri vinir tilkynntir er nær dregur
Gestir munu upplifa almyrkva á sólu í 64 sekúndur á Víðistaðatúni, en áhrifa sólmyrkvans mun gæta í tvær klukkustundir. Nánar á https://solmyrkvi2026.is/
Já, rétt er það. Hafnarfjörður er heimili ævintýranna.
Á mynd: Orri Björnsson, formaður bæjarráðs, Alexis Garcia frá Garcia events, Hildur Rós Guðbjargardóttir bæjarfulltrúi, Sigríður Ólafsdóttir frá Garcia events, Þórður Þórarinsson bæjarstjóri og Árdís Ármannsdóttir, sviðstjóri þjónustu- og þróunarsviðs.