Opið hús hjá Miðstöð vinnu og virkni 16. apríl
Aðstandendum, gestum og gangandi er boðið á opið hús þann 16. apríl næstkomandi milli 13 og 16 í tilefni af opnun Miðstöðvar vinnu og virkni, nýs sameinaðs vinnu- og virkni úrræðis fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Opið er að Selhellu 7 og Suðurgötu 14.
Opið hús að Selhellu 7 og Suðurgötu 14
Aðstandendum, gestum og gangandi er boðið á opið hús þann 16. apríl næstkomandi milli 13 og 16 í tilefni af opnun Miðstöðvar vinnu og virkni, nýs sameinaðs vinnu- og virkni úrræðis fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Tækifæri gefst þá á að kynna sér fjölbreytta starfsemi innan fjögurra deilda Miðstöðvarinnar. Um fimmtíu sækja þjónustuna daglega.
„Ég hlakka til að sýna starfsemina og aðstöðuna sem við erum mjög ánægð með. Hér hefur fólk það að markmiði að fá starf og er í góðri starfsþjálfun skipt eftir getu og áhugasviði,“ segir Brynja Sóley Stefánsdóttir, yfirþroskaþjálfi og deildarstjóri á Miðstöð vinnu og virkni. Miðstöðin var sett á laggirnar í breyttri mynd síðasta haust. Húsnæðið stækkaði þá um 75%.
„Fólk er margt hvert með svo fyrir fram ákveðnar hugmyndir um hvernig vinna og virkni með fötluðu fólki er. Nú getur það sannreynt hvort sú skoðun þeirra er rétt og við sýnt þeim að hér sinnum við öll mikilvægu starfi,“ segir hún stolt.
Opið hús verður bæði á Selhellu 7, þar sem Umhverfisvaktin er til húsa, og á Suðurgötu 14, bæði á fyrstu hæð þar sem tjáskipti og skynörvunarhluti Miðstöðvarinnar er staðsettur sem og á annarri hæð þar sem áhersla er lögð á líkamlega- og félagslega virkni.
Miðstöðvarkórinn mun svo loka deginum með nokkrum góðum lögum sem valin voru af kórmeðlimum.“
Þessi nýja miðstöð stuðlar að bættum lífsgæðum, sterkari samfélagslegri þátttöku og jöfnum tækifærum til að nýta hæfileika sína og færni.
Endilega kíktu við og sjáðu öflugt starfið.