Áfram samstarf um Víkingahátíðina

Fréttir

Hafnarfjarðarbær og víkingafélagið Rimmugýgur í Hafnarfirði hafa gert með sér nýjan samstarfssamning sem tryggir áframhaldandi framkvæmd Víkingahátíðar í Hafnarfirði næstu fimm árin, frá 2026 til 2030. Með samningnum er lagður traustur grunnur að áframhaldandi þróun Víkingahátíðarinnar.

Fimm ára samstarfssamningur um Víkingahátíðina

Hafnarfjarðarbær og víkingafélagið Rimmugýgur í Hafnarfirði hafa gert með sér nýjan samstarfssamning sem tryggir áframhaldandi framkvæmd Víkingahátíðar í Hafnarfirði næstu fimm árin, frá 2026 til 2030. 

„Víkingahátíðin er einn af þeim viðburðum sem gefa Hafnarfirði sérstakan svip og styrkja bæði menningarlíf og samfélagsanda bæjarins. Með þessum samningi erum við að styðja við öflugt grasrótarstarf og tryggja að íbúar og gestir geti áfram notið þessarar einstöku upplifunar um ókomin ár,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.  

Öflugt og einstakt samfélag víkinga á öllum aldri  

Rimmugýgur er öflugt og lifandi félag sem hefur byggt upp einstakt samfélag í kringum víkingamenningu, þar sem áhugi, fræðsla og lifandi miðlun sögunnar fara saman. Með samningnum er lagður traustur grunnur að áframhaldandi þróun Víkingahátíðarinnar sem haldin er árlega á Víðistaðatúni í júní og hefur fest sig í sessi sem einn af litríkari og fjölskylduvænni viðburðum sumarsins í Hafnarfirði. 

Markmið samstarfsins er að efla menningar- og ferðamannastarf í bænum með því að byggja á ríkum menningararfi. Hátíðin er opin öllum og leggur áherslu á að skapa aðgengilega og lifandi upplifun fyrir íbúa og gesti, þar sem saga og menning fá að njóta sín í skapandi og skemmtilegu umhverfi. 

„Það er okkur í Rimmugýgi mikil og einlæg hvatning að upplifa traust bakland frá bænum okkar fagra. Víkingahátíðin er svo mikið meira en bara viðburður – hún er árshátíð, ættarmót og fagnaðarfundir smíðað og hert saman í magnaða stund þar sem öll eru velkomin. Samvinna, samfélag, miðlun sagnaarfs og lifandi sögu hefur einkennt þessa hátíð frá upphafi og við hlökkum til að þróa hana áfram í nánu samstarfi við bæinn og gesti hátíðarinnar,“ segir Jökull Tandri jarl Rimmugýgjar.

Hátíð þar sem saga, sköpun og samvera fá að blómstra  

Samkvæmt samningnum mun Hafnarfjarðarbær veita árlegan styrk til verkefnisins sem styður við undirbúning, skipulag og framkvæmd hátíðarinnar. Á móti skuldbindur Rimmugýgur sig til að halda hátíðina árlega, tryggja faglega framkvæmd og öryggi, og vinna í góðu samráði við bæinn um þróun hennar til framtíðar. Samstarfið endurspeglar skýran vilja bæjarins til að styðja við grasrót, menningu og öflugt samfélagslíf í Hafnarfirði – þar sem saga, sköpun og samvera fá að blómstra. 

Ábendingagátt