Efla stafræna velferð í hafnfirskum skólum
Stafræn velferð í hafnfirsku skólasamfélagi verður elft með nýjum samningi sem fræðsluráð samþykkti á fundi sínum að gera við Önnu Laufeyju Stefánsdóttur, tölvunarfræðing og sérfræðing í þróun snjallforrita. Fimm grunnskólar hefja leika en öllum stendur það til boða.
Samið um stafræna velferð í skólasamfélagi
Fræðsluráð hefur ákveðið að gengið verði til samninga við Önnu Laufeyju Stefánsdóttur, tölvunarfræðing og sérfræðing í þróun snjallforrita, um verkefnið Stafræn velferð í skólasamfélagi.
Anna Laufey býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og þróun stafrænna lausna auk þess að hafa um árabil sinnt fræðslu fyrir börn, foreldra og skólasamfélög. Hún hefur leitt vinnustofur þar sem þátttakendur vinna sameiginlega að lausnum sem tengjast skjánotkun og daglegu lífi.
Stafræn velferð í skólasamfélagi er fræðsluverkefni sem sameinar fræðslu og vinnustofur fyrir nemendur, foreldra og kennara. Markmið þess er að efla vitund um áhrif snjalltækja og skjánotkunar og stuðla að heilbrigðu jafnvægi í stafrænu lífi barna.
Verkefnið er svar við þeirri áskorun að skjánotkun barna mótast ekki eingöngu innan heimilisins heldur einnig í stærra félagslegu samhengi, á milli vina, fjölskyldna og skóla, þar sem reglur og viðmið eru oft ólík.
Fræðsla fyrir nemendur fer fram á skólatíma og er sniðin að aldri þeirra. Í kjölfarið taka eldri nemendur, foreldrar og kennarar þátt í sameiginlegri vinnustofu þar sem áhersla er lögð á opið samtal, samvinnu og mótun raunhæfra viðmiða sem henta daglegu lífi.
Með verkefninu er leitast við að efla samstarf og gagnkvæman skilning innan skólasamfélagsins og styðja þannig við vellíðan barna í stafrænum heimi.
Gerður hefur verið samningur vegna verkefnisins við fimm grunnskóla, en öllum grunnskólum stendur þátttaka til boða. Að sögn Önnu hefur það vinnulag sem hún beitir skilað góðum árangri, þar sem lykilatriði er að börn og foreldrar vinni saman að sameiginlegum markmiðum. Anna segist jafnframt hlakka til að hefja verkefnið í haust og hitta hafnfirsk börn og foreldra.
Myndatexti: Erla Karlsdóttir, þróunarfulltrúi grunnskóla, Anna Laufey Stefánsdóttir, tölvunarfræðingur og sérfræðingur í þróun snjallforrita, Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs og Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs.