Björgvin Halldórsson – Sonur Hafnarfjarðar jarðsunginn í dag

Fréttir

„Björgvin var svo sannarlega sonur Hafnarfjarðar í dýpstu merkingu þeirra orða,“ ritar bæjarstjóri. Útför Björgvins verður frá Hallgrímskirkju í dag. Athöfnin er opin almenningi og hægt er að fylgjast með streymi frá athöfninni í Bæjarbíói hér í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið opnar 14.30. Erfidrykkjan að útför lokinni er á Ásvöllum. Öll velkomin.

 

Minningagrein – Björgvin Halldórsson

„Það er með miklum trega sem við Hafnfirðingar kveðjum Björgvin Halldórsson. Með fráfalli hans er horfinn einn af ástsælustu sonum Hafnarfjarðar, maður sem bar heimabæ sinn ávallt með sér og talaði um hann af hlýju, stolti og einlægri væntumþykju,“ ritar bæjarstjóri Hafnarfjarðar í minningargrein um Björgvin okkar Halldórsson söngvara og Hafnfirðing.

Útför Björgvins Halldórssonar verður frá Hallgrímskirkju í dag. Séra Guðni Már Harðarson jarðsyngur. Athöfnin er opin almenningi og hægt er að fylgjast með streymi frá athöfninni í Bæjarbíói hér í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið opnar 14.30. Erfidrykkjan að útför lokinni er á Ásvöllum. Öll velkomin.

„Björgvin var svo sannarlega sonur Hafnarfjarðar í dýpstu merkingu þeirra orða. Hann gleymdi aldrei hvaðan hann kom og við sem á hann hlýddum og með honum fylgdumst fundum það alltaf. Hann nefndi Hafnarfjörð gjarnan og talaði ávallt um bæinn sinn af væntumþykju. Björgvin var stoltur Hafnfirðingur og við vorum ekki síður stolt af honum. Hann var valinn bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 og var sá fyrsti til að fá nafn sitt ritað á fallegan skjöld sem er fyrir framan Bæjarbíó en Björgvin átti ótal margar og góðar minningar úr því húsi.

Það má ramma þetta stolt vel inn í textabroti úr laginu ,,Heim í Hafnarfjörð“ sem hann söng með Brimkló en þar segir m.a.:

,,Við Hafnarfjörð, við Hafnarfjörð,

ég held mér líki best á jörð.

Í Hafnarfjörð, í Hafnarfjörð

komdu heillin með í Hafnarfjörð.“

Framlag Björgvins til tónlistar verður ekki metið til fjár. Framlag hans býr í menningunni okkar, í tónlistinni, í minningunum og í þeim óteljandi stundum sem hann gaf fólki um land allt. En fyrir okkur Hafnfirðinga býr það líka í öðru og meira. Það býr í þeirri tilfinningu að einn okkar hafi auðgað líf svo margra og borið nafn bæjarins með reisn og hlýju.

Slík áhrif eru ómetanleg. Björgvin færði okkur gleði. Hann færði okkur stolt. Hann færði okkur þá sterku tilfinningu að Hafnarfjörður ætti sérstakan sess í hjarta hans rétt eins og hann átti sérstakan sess í hjörtum Hafnfirðinga. Fyrir það ber okkur að þakka.

Sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar vil ég fyrir hönd bæjarbúa færa honum einlægt þakklæti. Við þökkum honum fyrir framlag hans, fyrir tryggðina við heimabæinn og fyrir allt það stolt og þá gleði sem hann færði okkur með lífi sínu og starfi. Minning hans mun lifa áfram, bæði í hjörtum fólks og í sögu Hafnarfjarðar.

Að leiðarlokum votta ég Ragnheiði, Sigurði, Svölu, Krumma og öðrum aðstandendum mína innilegustu samúð.“

Já, við erum einlæglega þakklát og færum aðstandendum samúðarkveðju.

Ábendingagátt