Aðvörunartímabil vegna stöðubrota hefst í vikunni

Fréttir

Nú í vikunni byrjar Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar að setja aðvörunarmiða á bíla sem er lagt ólöglega í bænum. Markmið eftirlitsins er að bæta umferðaröryggi, tryggja aðgengi og stuðla að betra flæði fyrir íbúa og gesti bæjarins. Við hvetjum ökumenn til að leggja löglega og sýna nærgætni í umferðinni.

Bætt umferðaröryggi, aðgengi og flæði fyrir íbúa og gesti

Nú í vikunni byrjar Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar að setja aðvörunarmiða á bíla sem er lagt ólöglega í bænum. Til  að byrja með verða einungis settar viðvaranir á bíla sem er lagt ólöglega en á næstu vikum mun Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar byrja að leggja á stöðugjöld á ólöglega lagða bíla, Markmið eftirlitsins er að bæta umferðaröryggi, tryggja aðgengi og stuðla að betra flæði fyrir íbúa og gesti bæjarins.

Við hvetjum ökumenn til að leggja löglega og sýna nærgætni í umferðinni. Með samstilltu átaki getum við öll stuðlað að öruggari og aðgengilegri bæ fyrir alla.

Nánar um Bílastæðasjóð Hafnarfjarðar 

Svona lítur miðinn út:

Ábendingagátt