Star Wars-dagurinn á Bókasafni Hafnarfjarðar

Fréttir

Síðasti stóri viðburðurinn verður á gamla Bókasafni Hafnarfjarðar 2. maí, Stjörnustríðsdagurinn. Búist er við um 500 gestum. Öll velkomin að taka þátt og njóta.

Stjörnustríðsdagurinn á bókasafninu okkar

„Nú höldum við upp á stjörnustríðsdaginn laugardaginn 2. maí, sem fagnað er á heimsvísu þann 4. maí. Þetta er síðasti stóri viðburðurinn á Bóksafns Hafnarfjarðar, en eins og bæjarbúar vita skellir bóksafnið í lás 18. maí og flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði í Firði við Strandgötu,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri viðburða á Bókasafni Hafnarfjarðar.

„Auðvitað verða kynjaverur, vondir karlar og hetjur til staðar en bóksafnið hefur lengi talist hluti keisaraveldisins og fellur því undir vernd Svarthöfða,“ segir Unnur af miklu öryggi. Búist er við um 500 Star Wars-aðdáendum á staðinn.

Nú er gjörið tækifæri að heimsækja gamla Bókasafnið í síðasta skipti, sækja í leiðinni allar þær bækur sem hver og einn þarf fyrir sumarið og fá að hitta hetjur úr himingeimnum. Hver má taka að láni 30 bækur og þarf ekki að skila þeim fyrr en 1. ágúst vegna flutninganna – og skila þeim þá á nýjan stað!

„Stjörnustríðsdagurinn er alltaf virkilega skemmtilegur dagur,“ segir Unnur sem heldur Star Wars-daginn í fimmta skipti.

Já, njótum ólíkra heima saman!

Dagskrá í grófum dráttum:

13:00 – 501. herdeildin og Geislasverðafélagið mæta og sýna sig. Barmmerkjum dreift til krakka meðan birgðir endast.
13:30 – Stjörnustríðssögustund
14:00 – Sýningarbardagi frá Geislasverðafélaginu
14:30 – Myndataka með herdeildinni úti

Ábendingagátt