Aukið umferðaröryggi í bænum okkar
Við íbúar Hafnarfjarðar fáum nú tækifæri til að hafa áhrif á endurskoðun umferðaröryggisáætlunar bæjarins. Markmiðið er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkar slysum og bætir lífsgæði fyrir íbúa og aðra vegfarendur. Börnin verða einnig spurð, enda Hafnarfjörður barnvænt samfélag.
Aukið umferðaröryggi í bænum okkar
Hafnarfjörður vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar sinnar. Markmiðið er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkar slysum og bætir lífsgæði fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Hættur í umferðinni verða kortlagðar. Sú kortlagning byggir ekki aðeins á hvar slys hafa orðið heldur einnig á upplifun íbúa af varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.
Til þess að tryggja að raddir íbúa heyrist hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs. Þar gest íbúum tækifæri til að koma á framfæri ábendingum sínum. Við leitum eftir upplýsingum frá ykkur um þá hættustaði sem þið upplifið í umferðinni, ásamt því að staðsetja þá á korti.
Og – þessi vinna er ekki aðeins fyrir fullorðna. Börnin í 3., 6. Og 9. bekk taka einnig þátt í könnunninni í skólanum sínum. Nemendur svara fyrst nokkrum spurningum um hvernig þeir komu í skólann þennan dag og hvernig þeir koma vanalega í skólann. Að því loknu sjá þeir loftmynd af Hafnarfirði þar sem staðsetning grunnskóla kemur fram og eru beðnir um að teikna göngu- eða hjólaleið sína í skólann.
Ábendingagáttin fyrir íbúa verður opin til 1. júní næstkomandi í gegnum eftirfarandi hlekk:
