Sýningin Rúna:letur opnar – Rúna kvaddi í vikunni
Sýningin Rúna:letur verður opnuð í Hafnarborg í dag kl. 16. Sýningin beinir sjónum að leturgerð listakonunnar Rúnu, Sigrúnar Guðjónsdóttur, sem lést á dögunum á hundraðasta aldursári sínu.
Rúna:letur í Hafnarborg
Okkur Hafnfirðingum er boðið að vera viðstödd opnun sýningarinnar Rúna:letur í Hafnarborg í tengslum við HönnunarMars 2026 í dag 7. maí milli kl. 16-18.
Sýningin beinir sjónum að leturgerð listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttir, f. 1926), sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur nú endurgert í stafrænu formi. Letrið birtist upprunalega í lok sjötta áratugarins í bókinni Glaðheimakvöld, þar sem einkennandi form og hrynjandi þess koma þegar skýrt fram, auk þess sem það ber með sér handbragð og tíðaranda.
Langur, einstakur ferill
Rúna kvaddi okkur í vikunni. Eins og segir á Facebook-síðu Hafnarborgar var Rúna á hundraðasta aldursári, fædd árið 1926. „Með fráfalli hennar lýkur löngum og einstökum ferli sem markaði djúp spor í sögu íslenskrar myndlistar og hönnunar,“ segir þar.
„Líf og list Rúnu voru órjúfanlega tengd. Hún starfaði á fjölbreyttum vettvangi, frá frjálsri listsköpun til hönnunar, og var frumkvöðull í leirlist á Íslandi. Á ferli sínum átti hún sömuleiðis farsælt samstarf við virt alþjóðleg hönnunarfyrirtæki, auk þess að vinna að bókaskreytingum, ritlist, auglýsingum og veggmyndum, meðal annars í samstarfi við eiginmann sinn, Gest Þorgrímsson.“ Rúna var fyrst allra valin bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar, það var árið 2005.

Rúna – Sigrún Guðjónsdóttir, bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar 2005. Mynd/Guðni Gíslason
Merkilegt í hönnunarsögunni
Sýningin í Hafnarborg varpar ljósi á ferlið á bak við gerð letursins og opnar um leið glugga inn í merkilegan þátt íslenskrar hönnunarsögu. Þar mætast varðveisla og endursköpun, rannsókn og hönnun, í verki sem tengir fortíðina við nýja notkun í samtímanum. Með því að færa letur Rúnu í stafrænt form, undir heitinu Rúna, er þessi mikilvægi arfur íslenskrar leturgerðar dreginn fram og fær nýtt líf. Letrið verður jafnframt gert aðgengilegt á heimasíðu Hafnarborgar, þar sem áhugasömum mun gefast kostur á að hlaða því niður til eigin nota.
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og heiðursverðlaun Íslensku hönnunarverðlaunanna.
Ljóðrænn taktur
Fulltrúar Hafnarborgar rita. „Myndheimur Rúnu einkennist af ljóðrænum takti þar sem kvenfígúrur, fuglar, fiskar og náttúruform fléttast saman í litum og línum. Verk Rúnu bera sterk höfundareinkenni og eru til marks um óþrjótandi sköpunarkraft og listfengi. Þá hlaut hún margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem fálkaorðuna og heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands, auk þess sem hún var fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2005.