Hafnarfjörður heilsueflandi samfélag
Hafnarfjörður varð i dag formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning.
Hafnarfjörður varð i dag formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning.
Í Heilsueflandi samfélagi er lögð áhersla á að vinna með fjóra meginþætti: Hreyfingu, næringu, líðan og lífsgæði
„ Þetta er spennandi verkefni sem miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Hafnarfjarðarbæjar með markvissum þverfaglegum heilsueflingaraðgerðum fyrir alla íbúa bæjarins „ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri.
Fyrsta skrefið er að fá þá skóla í Hafnarfirði sem ekki eru skráðir í verkefnið heilsueflandi skólar til að skrá sig til leiks og verða virkir í því. Haldinn verður fundur með skólasamfélaginu í Hafnarfirði þar sem fulltrúar þeirra skóla í bænum sem hafa verið að vinna að verkefninu heilsueflandi skóli munu kynna þá vinnu sem þeir hafa þegar lagt í.