Íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2015
Kjör íþróttakonu og íþróttakarls Hafnarfjarðar 2015
Íþróttakona og –karl Hafnarfjarðarbæjar árið 2015 verða krýnd á viðurkenningarhátíð sem haldin verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu þriðjudaginn 29. desember. Hátíðin hefst stundvíslega kl. 18:00.
Athugið að beint streymi er frá hátíðinni í kvöld á forsíðu heimasíðu bæjarins:
www.hafnarfjordur.is
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd verða með afhendingu viðurkenninga til hafnfirskra íþróttamanna, Íslandsmeistara, hópa Bikarmeistara, Norðurlandameistara og sérstakra afreka, ásamt vali á
íþróttakonu og íþróttakarli Hafnarfjarðar
á árinu 2015. Afhendingin fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu þriðjudaginn 29. desember kl. 18:00.
Dagskrá hátíðar
- Samkoman sett
- Viðurkenningar til þeirra sem urðu Íslandsmeistarar 2015
- Viðurkenningar til þeirra sem urðu bikarmeistarar 2015
- Viðurkenningar vegna sérstakra afreka á árinu 2015
- Afhending Í.S.Í bikars
- Afhending viðurkenningarstyrkja til íþróttafélaga
- Úthlutun styrkja vegna íþróttastarfs 16 ára og yngri
- Viðurkenning til ,,Íþróttaliðs ársins” 2015
- Viðurkenningar til þeirra hafnfirsku íþróttamanna sem fram úr skara og eru hvetjandi fyrir ástundun íþrótta
- Lýst kjöri á ,,Íþróttakonu og íþróttakarli Hafnarfjarðar” 2015
Léttar veitingar í boði hússins. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og fagna.
