Ræktun og útinám virkjuð í leikskólastarfi

Fréttir

Stephen James Midgley er í forsvari fyrir tvö verkefni sem hlutu styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar á vordögum. Verkefnin snúa annars vegar að ræktun og samstarfi heimila og leikskóla og hins vegar að útinámi við Ástjörn í samstarfi sex leikskóla í nágrenni þeirrar náttúruperlu. Hann segir bæði verkefnin byggja á að tengja börn betur við náttúruna, nærumhverfið og samfélagið sitt.

Aukin tengsl við náttúruna, nærumhverfið og samfélagið

Stephen James Midgley, aðstoðarleikskólastjóri og útinámskennari á leikskólanum Hamravöllum, er í forsvari fyrir tvö verkefni sem hlutu styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar á vordögum. Verkefnin snúa annars vegar að ræktun og samstarfi heimila og leikskóla og hins vegar að útinámi við Ástjörn í samstarfi sex leikskóla í nágrenni þeirrar náttúruperlu. Hann segir bæði verkefnin byggja á að tengja börn betur við náttúruna, nærumhverfið og samfélagið sitt.

Samvinnan alltaf lykillinn

Stephen segir ræktunarhugmyndina hafa upphaflega komið frá Emil samstarfsmanni sínum á Hamravöllum, en þegar auglýst var eftir umsóknum um styrk úr menntasjóðnum hafi þeir ákveðið að hefjast handa við að þróa verkefnið fyrir alvöru. „Við virkjuðum annað starfsfólk með okkur í þetta, því það er að sjálfsögðu alltaf best fyrir samvinnuna. Við ætlum að nota blómabeð eða ræktunarker sem eru þegar á leikskólalóðinni og hafa ekki verið notuð lengi. Við byrjum á að hreinsa þar til og gera þau tilbúin til notkunar.“ Hann muni svo gera tengingu á milli barnanna og kerjanna þannig að hver deild sjái um eitt ker. Þá verði foreldrar barnanna einnig upplýstir um þetta allt og fái að fylgjast með. 

Styrkurinn úr menntasjóðnum muni koma vel að gagni til að endurbæta beðin, kaupa mold, fræ og blóm og annað sem þarf til að sinna þessu. „Foreldrasamstarfið hefst svo sumarið 2027 þegar þetta verður allt orðið almennilega tilbúið. Það er best að taka allt svona skref fyrir skref. Kannski setja eitthvað smávegis í þau beð sem verða tilbúin í sumar. Hugmyndin er að þetta verði svo alltaf hluti af náminu hér í skólanum til frambúðar. Og svo verður hægt að prófa okkur áfram með rótargrænmeti sem hægt yrði að taka upp haustin og nota sem hluta af matnum hér, svo að börnin upplifi tilfinninguna af uppskerunni,“ segir Stephen bjartsýnn. 

Ástjörn og umhverfi tilvalinn vettvangur náms

Hitt verkefnið er Ástjörn útinám – samstarf 6 leikskóla og er hugmynd frá Stephen sjálfum. Hann er menntaður útinámskennari og bæði lokaverkefni hans á BS og M.Ed. stigi í leikskólakennarafræðum snerist útinám. Hann er einn af starfsfólki í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar sem nýtti námsstyrk frá bænum til þess að stunda nám í slíkum fræðum og útskrifaðist 2024, en hann hefur starfað í leikskólum í bænum síðan 2019. 

„Síðan ég hóf störf hérna á Hamravöllum hef ég fest útinám sem hluta af námskrá okkar. Ég bjó til fyrir löngu vettvang til að tengja saman leikskólana í Hafnarfirði til að deila hugmyndum, reynslu og upplýsingum um það útinámsstarf sem skólarnir eru nú þegar að vinna að. Þar varð til hugmyndabanki með útinámsverkefnum tengdum Ástjörn og kennarar við þá sex skóla í nágrenninu eru tengiliðir.“ Þegar auglýst var eftir umsóknum um styrk úr menntasjóðnum, þá sóttu sex leikskólar um slíkan í sameiningu. „Hver og einn er með þema, s.s vatn, blóm, fugla, tré, gönguslóða og útsýni – og býr til verkefni tengd því. Fjármagnið verður notað til að kaupa tæki og tól sem þarf fyrir hvert verkefni og lána á milli leikskóla. Einnig til að búa til Ástjarnarhátíð sem verður í lok maí, þar sem verður grillmatur, söngur og gleði.“ Spurður hvers vegna útinám sé svona heillandi svarar Stephen því til að almennt líði börnum best úti í súrefni og náttúru og því sé um að gera að kenna þeim meira á þeim vettvangi. „Okkur langar með þessu að sýna fram á að þetta sé hægt og virkja aðra leikskóla í bænum, því allir eru þeir með einhverja fallega náttúru í nágrenninu. Við getum hjálpast að; það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið,“ segir hann brosir.  

Karlkyns leikskólakennarar hrifnir af útiveru

Sjálfur hefur Stephen alltaf verið hrifinn af útinámi og hann segir það þekkt og rannsakað að karlkyns leikskólakennarar sækist meira í að vera úti með börnin og í ærslum og virkri hreyfingu. „Ég er búinn að vera mikið úti við í lífinu. Bjó um tíma í tjaldi í nokkur ár þegar ég var yngri, vann í fjöllunum í Argentínu, fyrir Umhverfisstofnun um tíma í Landmannalaugum og Vatnaskógi og á Hornströndum svo eitthvað sé nefnt. Stunda mikla útivist og á sjálfur fjögur börn sem ég fer mikið út með. Mér finnst frábært hjá Hafnarfjarðarbæ að gera þetta og treysta okkur til að koma með hugmyndir. Þannig verður samvinna til.“

Á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.  Vegferðin hefst með Maríu Baldursdóttur, verkefnastjóri menntamála og innritunar í leikskóla hjá Hafnarfjarðarbæ.

Ábendingagátt