Sextán styrkveitingar í fyrsta sinn úr Menntasjóði
16 verkefni hafa hlotið styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar fyrir skólaárið 2026 – 2027. Styrkirnir voru veittir á dögunum í Hafnarborg.
Sextán styrkir úr Menntasjóði
16 verkefni hafa hlotið styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar fyrir skólaárið 2026 – 2027. Styrkirnir voru veittir á dögunum í Hafnarborg, samtals 11 milljónir króna.
„Þessar styrkveitingar eru skýr vitnisburður um það öfluga og framsækna starf sem unnið er í skólum og frístundastarfi Hafnarfjarðar. Við eigum afar hæft starfsfólk sem hugsar stórt, vinnur saman og setur þarfir barna og ungmenna ávallt í fyrsta sæti,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Tilgangur styrkveitinganna er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í skóla- og frístundastarfi mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla gæði og fagmennsku í starfi með börnum, stuðla að auknu samstarfi og styðja við rannsóknir. Verkefnin skulu styðja við eða efla fagstarf með áherslu á þátttöku barna og ungmenna á starfsstöðum sviðsins.
Í heildina bárust 27 umsóknir sem fagnefnd skipuð fulltrúum tilnefndum af sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs fór yfir. Við mat á umsóknum var horft til tengingar við leiðarljós Menntastefnu Hafnarfjarðar. Eins var skoðað hvernig verkefnið samræmist árlegum áherslum (samvinnu), markmið, verk- og tímaáætlun auk þess sem horft var til nýsköpunar og þróunar. Einnig hvaða árangri og ávinningi verkefninu væri líklegt til að skila fyrir skóla- og frístundastarf í Hafnarfirði.
Þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir úr Menntasjóði Hafnarfjarðar. Þessi fengu styrk:
Að lýsa upp myrku vetrana
Tengiliður: Theodoros Achilleas Proikas
„Að færa ljós í myrkrið“ er skuggaleikhúsverkefni þar sem börn vinna með tilfinningar, sköpunargáfu og samvinnu í gegnum ljós og skugga. Með því að nota hendur, fígúrur, og líkamshreyfingar, skapa börn og kynna sínar eigin skuggasýningar, sem færir hlýju og ímyndunarafl inn í vetrarmyrkrið.
Ástjörn útinám
Tengiliður: Stephen James Midgley
„Ástjörn Útinám“ er samstarfsverkefni 6 leikskóla í Hafnarfirði þar sem Ástjörn er nýtt sem sameiginlegt námsrými. Skólarnir þróa og prófa stuttar útinámsáætlanir í sameiginlegu sniði og deila þeim í hugmyndabanka, með lærdómssamfélags-samstarfi og lokahittingi við Ástjörn. Verkefnið eflir samvinnu, vellíðan og skapandi nám í nærumhverfinu.
Brúin að íþróttum
Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir
Verkefnið miðar að því að börn af erlendum uppruna í 1.–4. bekk fái tækifæri til að kynnast íþróttastarfi Haukanna í öruggu og skipulögðu umhverfi. Markmiðið er að jafna tækifæri til þátttöku, efla félagslega tengingu og styðja við inngildingu í samfélaginu með samvinnu skóla, frístundaheimila, brúarsmiða og íþróttafélagsins Hauka.
Einstaklingsnámskrár
Tengiliðir: Anna Rut Pálmadóttir og Jóhanna Björg Másdóttir
Unnið er að samræmdri innleiðingu einstaklingsnámskráa í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar með það að markmiði að tryggja jafnan aðgang nemenda að einstaklingsmiðuðu námi í samræmi við endurskoðun greinasviða í aðalnámskrá. Verkefnið felur í sér skýr verklag, uppfærð hæfniviðmið og leiðbeiningar fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra í Mentor. Með þessu er stuðlað að auknum gæðum, jafnræði og samfellu í skóla- og stoðþjónustu Hafnarfjarðar.
Færniflipp
Tengiliður: Steinbjörn Logason
Þróunarverkefnið „FÆRNIFLIPP“ er samþætt kennslu- og námsfyrirkomulag (samvinna) sem tengir saman náttúrugreinar, samfélagsgreinar og upplýsinga- og tæknimennt. Markmið verkefnisins og er að efla hæfni nemenda í að beita vísindalegum vinnubrögðum á skapandi og hagnýtan hátt. FÆRNIFLIPP er hannað með þarfir nútíma nemenda í huga og smellpassar við áherslur Aðalnámskrár grunnskóla um heildstæða hæfni og samvinnu fremur en einangraða staðreyndarþekkingu.
Golfklúbbur í Holtaseli
Tengiliðir: Margrét Heiða Magnúsdóttir og Svandís Roshni Guðmundsdóttir
Samvinnuverkefni milli frístundaheimilisins Holtasels í Hvaleyrarskóla og Golfklúbbsins Keilis. Starfsmaður Holtasels fer einu sinni í viku með hóp af nemendum í Keili þar sem þau fá golfkennslu í 60 mínútur í senn.
Heimurinn okkar
Tengiliðir: Íris Baldvinsdóttir og Kristín Lind Albertsdóttir
„Heimurinn okkar“ er þróunarverkefni sem miðar að því að hanna og innleiða sérhæft, myndrænt og hlutbundið námsefni fyrir nemendur á einhverfurófi til að efla sjálfstæði þeirra og námsárangur. Með því að brúa skort á íslensku námsefni er stuðlað að auknum gæðum og vellíðan í skólastarfi, í takt við áherslur Menntastefnu Hafnarfjarðar um fjölbreytni og nýsköpun.
Horft til framtíðar
Tengiliðir: Berglind Kristjánsdóttir og Ingibjörg Ósk Helgadóttir
Verkefnið snýr að samræmingu að gerð ferilmappa barna í Skarðshlíðarleikskóla. Um er að ræða samvinnu alls starfsfólks og með verkefninu er stuðlað að enn betra lærdómssamfélagi.
Hugsandi skólastofa
Tengiliður: Arnar Sigurjónsson
Hugsandi skólastofa í stærðfræði þar sem allir nemendur eru virkir þátttakendur í rökhugsun og lausnaleita, fremur en að einblína á að fylgja fyrirfram gefnum aðferðum eða að muna reglur.
Hæglæti
Tengiliður: Bryndís Guðlaugsdóttir
Verkefnið „Hæglæti í leikskólastarfi“ miðar að því að efla samvinnu, vellíðan og þátttöku barna með hægari takti og markvissari starfsháttum. Verkefnið styrkir fagmennsku starfsfólks og skapar rými fyrir dýpri leik og tengsl.
Reiknum með orðum
Tengiliður: Hildur Arna Håkansson
Verkefnið „Reiknum með orðum“ samræmir stærðfræðiorðaforða frá 1.–10. bekk með gerð vefsíðu, veggspjalda og skapandi verkefna. Markmiðið er að brúa bilið milli skólastiga og bæta stærðfræðilegt læsi nemenda í Hafnarfirði.
Samvinna og tækni
Tengiliður: Elísabet K. Benónýsdóttir
Í nútímasamfélagi er forritun og hönnun orðin veigamikill þáttur og því mikilvægt að skólinn endurspegli það og undirbúi nemendur. Nemendur vinna saman að skapandi forritunarverkefnum sem samþætta tækni, stærðfræði og hönnun á leikandi hátt. Verkefnið eflir tæknilæsi, samvinnu nemenda og býr til samfellu milli skólastiga í forritunarkennslu með notkun LEGO Spike Prime.
Skjálaus samvera
Tengiliður: Haukur Þór Þorvarðarson
Verkefnið er nýsköpunarverkefni í grunnskólum og frístund þar sem markvisst er unnið að því að draga úr skólaforðun með því að efla líðan, öryggi og þátttöku barna í grunnskólastarfi. Verkefnið sameinar kennara, frístundastarf, foreldra og stoðþjónustu í heildstæðu teymisstarfi, þar sem þróaðar eru lausnir sem styrkja tengsl, skólasókn, andlega vellíðan nemenda og starfsfólks.
Stofa 13
Tengiliður: Hugborg P. Erlendsdóttir
Verkefnið „Stofa 13“ er nýtt úrræði í Öldutúnsskóla fyrir börn með einhverfu á yngsta og miðstigi. Úrræðið er sett á laggirnar til að hægt sé að veita einstaklingsmiðaða kennslu eða kennslu í litlum hópum í rólegu og skipulögðu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að mæta þörfum barna með einhverfu t.d. hvað varðar námsgögn og leikefni sem er sérstaklega ætlað að styðja við tjáningu, einbeitingu, skynúrvinnslu ofl.
Tæknibras í Dalnum
Tengiliðir: Margrét Halldórsdóttir og Íris Anna Randversdóttir
Tækni- og sköpunarsmiðja í félagsmiðstöðinni Dalnum. Nemendur fá tækifæri til þess að koma saman og fá leiðsögn, aðstöðu, efni og búnað til að skapa og þróa sínar hugmyndir.
Vekjum ræktunina
Tengiliður: Stephen James Midgley
Við viljum endurlífga ræktunarbeðin sem hafa legið ónotuð og byggja upp verkefni sem snýst fyrst og fremst um samvinnu:
-
- samvinnu innan deilda
- samvinnu milli deilda
- samvinnu við foreldra/heimilin.
Verkefnið sameinar ræktun og moltugerð: settar verða upp 3 moltutunnur og deildir fylgja sameiginlegum verkferlum um lífrænan úrgang. Til að gera samvinnu milli deilda sýnilega verður innleitt „beðavinakerfi“ (deildir paraðar), auk stutts ræktunar-/moltuteymis (mini-lærdómssamfélag) og sameiginlegrar miðlunar í húsinu (t.d. „ræktunartafla“ með myndum frá öllum).
Já, skólastarfið eflist með góðri nýsköpun.