Hafnarfjarðarbær kominn með lykilinn að nýja bókasafninu

Fréttir

Hafnarfjarðarbær fékk síðdegis í dag afhentan lykilinn af húsnæðinu sem rýmir nýtt bókasafn bæjarfélagsins í verslunarmiðstöðinni Firði. Flutningar bókasafnsins standa yfir. Stefnt er á að opna það fyrir bæjarbúum strax 1. júlí. Athöfnin var núna korter í sjö síðdegis. Nú hefjast flutningar af fullum krafti.

Bærinn fær lykilinn að nýju bókasafni              

Hafnarfjarðarbær fékk í dag afhentan lykilinn af húsnæðinu sem rýmir nýtt bókasafn bæjarfélagsins í verslunarmiðstöðinni Firði. Flutningar bókasafnsins standa yfir. Stefnt er á að opna það fyrir bæjarbúum strax 1. júlí.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir mikla spennu fyrir bókasafninu á nýjum stað. „Nýja bókasafnið okkar verður svo mikið meira en bókasafn. Það mun laða að ólíka hópa og þjóna hlutverki samfélagshúss hér í Hafnarfirði,“ segir hann.

„Hér geta bókaunnendur valið úr tugumþúsunda bókatitla og lesið. Þeir geta líka tekið upp hlaðvörp og tónlist, skapað eigin hluti, sótt námskeið og fjölbreytta viðburði í nýjum og glæsilegum fjölnotasal. Hér mun allt fyllast af lífi og fjöri í júlí og við hlökkum til,“ segir Valdimar.

Húsnæðið nýja bókasafnsins er tæpir 1.700 fermetrar að stærð. Þar af eru um 550 fermetrar í nýbyggingu Fjarðar við Strandgötu 26-30 sem rís hratt þessa dagana. Breytingarnar og uppbyggingin við Fjörð eru mestu framkvæmdir sem átt hafa sér stað í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi.

Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, segir hilla í nýtt bókasafn og nú taki Hafnarfjarðarbær við keflinu. „Gólfefnin eru komin, öll umgjörð safnsins og rými. Nýja bókasafnið verður menningarmiðstöð með afþreyingu fyrir alla aldurshópa. “ Bókasafnið verði lifandi samverustaður fyrir alla aldurshópa og gesti Fjarðar.

220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar rituðu undir samning um bókasafnið í Firði í desember 2020. „Ég hef alltaf sagt að bókasafnið verði hjartað í kjarnanum,“ segir Guðmundur. Innblásturinn komi frá Olsó í Noregi.

„Þessi breyting hjálpar miðbænum að vaxa og dafna og verða líflegri. Fleiri fyrirtæki munu koma til með að opna, eflast og dafna á Strandgötunni,“ segir hann.

„Já, við erum að uppfæra Hafnarfjörð og með þessu móti erum við að skapa jarðveg fyrir einstaklega öflugan verslunarkjarna í hjarta Hafnarfjarðar,“ segir Guðmundur. „Hér færðu persónulega þjónustu, allt á sama blettinum.“

 

 

Ábendingagátt