SMS örsögur og ratleikur
Fjölbreytt dagskrá og skemmtileg verkefni eru í boði á bókasafni Hafnarfjarðar á Bóka- og bíóhátíð barnanna. SMS örsögukeppni, ljóð unga fólksins, útlánaleikur, ratleikur og saga á umbúðapappír.
Bókasafn Hafnarfjarðar tekur virkan þátt í Bóka- og bíóhátíð barnanna og er nóg um að vera! Alla vikuna geta þeir sem fá lánaðar barnabækur tekið þátt í útlánaleik þar sem dregin verða út bókaverðlaun. Gestir og gangandi eru hvattir til að taka þátt í að semja eina stóra sögu saman á umbúðapappír á barnadeildinni auk þess sem opnað hefur verið fyrir þátttöku í SMS-örsögukeppni. Á þriðjudag verður ratleikur um safnið frá kl. 14-19 og á miðvikudag verður bókabingó í fjölnotasalnum kl. 17.
- Ljóð unga fólksins. Landskeppni 4.-10. bekkinga í ljóðaskrifum. Nemendur skila ljóðum á bóka-/skólabókasafnið eða rafrænt á vef bókasafnsins. Nánari upplýsingar á bóka-/skólabókasafni í þínum skóla!
- SMS örsögukeppni. Þema keppninnar er „lestur“. 35 orða örsaga send í #6960035 í síðasta lagi 21. febrúar. Góð verðlaun í boði fyrir 1.-3. sæti.
- Útlánaleikur. Foreldrar barna á leik- og grunnskólaaldri fá afslátt af nýju bókasafnsskírteini. Árgjald á 1.000 kr. í stað 1.900 kr. Foreldrar eru fyrirmynd barna sinna í lestri. Nöfn allra sem taka barnabók/-bækur að láni þessa daga fara í pott. Dregið verður úr nöfnunum og einhverjir heppnir lestrarhestar fá bókaverðlaun.
- Semjum sögu saman. Saga skrifuð með þátttöku þinn á umbúðapappír á barnadeild bókasafnsins.
- Ekki dæma bókina eftir bíómyndinni. Bókaútstilling á bókum og bíómyndum gerðum eftir þeim.
Eins og endranær er safnið opið fyrir skólahópa leik- og grunnskóla að koma í sögustund eða safnkynningu. Pantað hjá bókasafninu.
Fylgist með á: