Frábær sumarnámskeið í félagsmiðstöðvunum
Sumarnámskeiðin Tómstund eru haldin af félagsmiðstöðvum bæjarins fyrir nemendur 4.-7. bekkjar. Hópaskipt er eftir aldri.
Vertu með jafnöldrunum í sumar
Sumarnámskeiðið Tómstund er skemmtilegt og fjölbreytt, haldið af félagsmiðstöðvum bæjarins. Þar fá þátttakendur að prófa fjölbreyttar smiðjur, skapandi verkefni, leiki og afþreyingu í öruggu og jákvæðu umhverfi. Lögð er áhersla á samvinnu, vináttu, sjálfstraust og gleði ásamt því að kynna starfsemi félagsmiðstöðva á lifandi og skemmtilegan hátt.
Nýtt og spennandi fyrirkomulag verður á Tómstund í ár. Námskeiðinu verður skipt upp eftir aldri þannig að hver hópur fær dagskrá sem hentar honum sem best og meira rými til að njóta verkefna og smiðja með sínum jafnöldrum. Tómstund í sumar verður opin frá 15. júní – 10. júlí.
Tvær staðsetningar verða í boði hjá bænum; eitt námskeið í Hraunvallaskóla og annað í Víðistaðaskóla.
- Skráning fer fram á sumarvölunni: sumar.vala.is
Skráning fyrir öll námskeið er hafin og lýkur föstudeginum fyrir hverja námskeiðsviku. Skráð er fyrir hverja viku fyrir sig.Hægt er að fylgjast betur með á Facebook-síðu námskeiðsins: Tómstund Hafnarfjarðar.
Tómstund Hraunvallaskóla:
VIKA 1: 15.-19. júní – Hreyfivika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 4.-5. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 6.-7. bekkur
VIKA 2: 22.-26. júní – Lista- og sköpunarvika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 6.-7. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 4.-5. bekkur
VIKA 3: 29.-3. júlí – Ævintýra- og leikjavika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 4.-5. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 6.-7. bekkur
VIKA 4: 6.-10. júlí – Tilrauna- og félagsmiðstöðvavika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 6.-7. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 4.-5. bekkur
Tómstund Víðistaðaskóla:
VIKA 1: 15.-19. júní – Lista- og sköpunarvika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 6.-7. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 4.-5. bekkur
VIKA 2: 22.-26. júní – Hreyfivika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 4.-5. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 6.-7. bekkur
VIKA 3: 29.-3. júlí – Tilrauna- og félagsmiðstöðvavika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 6.-7. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 4.-5. bekkur
VIKA 4: 6.-10. júlí – Ævintýra- og leikjavika
Fyrir hádegi (8:30-11:30): 4.-5. bekkur
Eftir hádegi (12:30-15:30): 6.-7. bekkur
