Deiliskipulag Miðbæjar Hraun Vestur
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 31.okt.2017 að auglýsa á ný tillögu að deiliskipulagi Miðbæjar Hrauns Vestur með vísan til 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endurauglýsingin byggir á athugasemdum Skipulagsstofnunar við greinagerð deiliskipulagsins dags. 18.sept 2015.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 04. 04. til 16. 05. 2018. Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 16. maí. 2018. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar.
Skipulagsfulltrúi.