Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga, Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 3.4.2018 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í breytingartillögunni hefur verið dregið úr einbýlishúsalóðum og þess í stað lögð áhersla á blandaða byggð. Íbúðum fjölgað úr 88 í 120. Jafnframt er gerð breytingartillaga að legu og formi byggingarreita.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 23.04.2018 – 04.06.2018.
- Skarðshlíð 3 – breytt greinagerð og skipulagsskilmálar 3. apríl 2018
- Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 3. áfangi 3. apríl 2018
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 4. júní 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar.
Skipulagsfulltrúi.