Við erum þorpið – Fáðu fréttir af stöðu hafnfirskra unglinga

Fréttir

Fimm erindi öll pökkuð upplýsingum verða flutt á klukkustund á hraðstefnumóti við ykkur foreldra í Hafnarborg þriðjudaginn 9. júní. Fimm sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar í forvörnum og málefnum barna halda erindin. Við hvetjum ykkur öll til að mæta.

Komdu á hraðkynningu – það er þess virði

Fimm sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar opna skúffurnar og deila með íbúum og áhugasömum helstu vendingum í málefnum barna í bænum á opnum fundi á Apótekinu í Hafnarborg þriðjudaginn 9. júní.
Sumarfríið og fjölskyldusamveran er framundan og tilvalið að staldra við og skoða stöðu og reynslu barnanna okkar. Sérfræðingarnir fimm eru:
  • Þórunn Þórarinsdóttir, umsjónarmaður Ungmennaráðs Hafnarfjarðar og verkefnastjóri Barnvæns Sveitarfélags.
  • Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, kennslufulltrúi mannréttinda.
  • Jóna Rán Pétursdóttir, forvarnafulltrúi bæjarins.
  • Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi.
  • Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar.

Fjölmargra breytingar og viðburðir hafa verið haldnir síðustu misseri hér í Hafnarfirði. Unglingarnir okkar hafa tekið þátt í ungmennaþingum, haldið hefur verið fjölmenningarþing auk þess sem staða ungmennanna okkar hefur verið könnuð. Sérfræðingarnir hafa kafað í niðurstöður og tekið saman fyrir okkur. Þeir segja okkur frá því hver staðan er og gefa góð ráð – allt á einni klukkustund í Hafnarborg. Það má því segja að þetta sé hraðstefnumót við ykkur foreldra hér í Hafarfirði, þar sem hver mínúta er hlaðin upplýsingum sem nýtast ykkur inn í sumarið og fram á veginn.

Velkomin öll.

 Dagskrá:

Fyrsta hraðerindi. „Stundum erum við hrædd við að segja það sem við hugsum“ – Samantekt á niðurstöðum Barnaþings Hafnarfjarðar þar sem 10-12 ára börn gáfu innsýn í sitt heimili, vinahópinn og skólastarfið.
Flytjandi: Þórunn Þórarinsdóttir, umsjónarmaður Ungmennaráðs Hafnarfjarðar og verkefnastjóri Barnvæns Sveitarfélags.
Annað hraðerindi. Ungt fólk og ofbeldi – Hvernig eru ungmenni í Hafnarfirði að kynnast og hvernig lítur nútíma ástarsamband út? Hvernig getum við leiðbeint þeim í átt að heilbrigðum samskiptum. Hver eru rauðu flöggin og hvert geta fjölskyldur leitað?
Flytjandi: Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, kennslufulltrúi mannréttinda.
Þriðja hraðerindi.  Tölfræði um áhættuhegðun og líðan grunnskólanemenda – Hvar eru áfengi og vímuefni að birtast í grunnskólunum og hvernig líður börnunum núna?
Flytjandi: Jóna Rán Pétursdóttir, forvarnafulltrúi.
Fjórða hraðerindi. Frístundastyrkurinn – Hvernig dreifist frístundastyrkurinn til barna í Hafnarfirði, yfirlit yfir nýtingu styrksins árið 2025 og upplýsingar um breytt fyrirkomulag.
Flytjandi: Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi.
Fimmta og síðasta hraðerindið. Skólaskylda og hvað svo? – Hver er staða barna af erlendum uppruna í Hafnarfirði og hvað stendur þeim til boða í frítíma sínum? Frásögn af samstarfsverkefnum vetrarins.
Flytjandi: Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar.
Hvar = Hafnarborg – Apótekið
Hvenær  = 9. júní milli kl. 17:30-18:30
——————————

Saman erum við þorpið – vertu með!

Haustið 2024 fór Hafnarfjarðarbær og heilsubærinn Hafnarfjörður af stað með fundaröðina: Við erum þorpið – um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi.

Á árinu 2025 héldum við leikum áfram og funduðum undir heitinu: Við erum þorpið – horfumst í augu. Já, samstarf heimila, skóla og samfélags er svo mikilvægt. Við höldum því áfram og fundum undir merkjum Við erum þorpið enda Hafnarfjörður nú barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.

Ábendingagátt