Kaldárselsvegur – lokanir vegna framkvæmda
Stefnt er að því að malbika milli hringtorga á Kaldárselsvegi, frá Sörlatorgi að nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð, föstudaginn 3. maí. Merkingar verða settar upp á svæðinu. Umfang framkvæmda og þar með lengd lokunar mun að einhverju leyti ráðast á veðri.
<img height=“1″ width=“1″ style=“display:none“ src=“https://www.facebook.com/tr?id=307673236567705&ev=PageView&noscript=1″ />
Vegna komandi malbikunarframkvæmda við Kaldárselsveg á tímabilinu frá 22. apríl til 6. maí er ekki hjá því komist að röskun verði á umferð um svæðið vegna lokana á vegköflum sem merktir eru á yfirlitsmynd. Röskun á umferð vegna lokana verður um eftirtaldar götur en þó á mismunandi tímum:
- Kaldárselsvegur
- Elliðavatnsvegur
- Brekkuás
- Klettahlíð
Fyrsta lokun – frá Sörlatorgi að hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð föstudaginn 3. maí
Stefnt er að því að malbika milli hringtorga á Kaldárselsvegi, frá Sörlatorgi að nýju hringtorgi við Brekkuás/Klettahlíð, föstudaginn 3. maí. Merkingar verða settar upp á svæðinu. Umfang framkvæmda og þar með lengd lokunar mun að einhverju leyti ráðast á veðri.


Framkvæmdasvæðið verður ekki lokað í heild sinni á sama tíma en nánari upplýsingar um áfangaskiptingar lokana verða auglýstar þegar nær dregur framkvæmdartíma.
Fyrirfram þakkir fyrir tillitssemina.