Víkingahátíð í Hafnarfirði
Árleg Víkingahátíð í Hafnarfirði á Víðistaðatúni Allir velkomnir að koma og skoða markaðsbása, horfa á bardagasýningu og leyfa krökkunum að…
Hjarta Hafnarfjarðar tekur kipp á þjóðhátíðardaginn. Af hverju? Jú, þetta er dagurinn okkar allra. Vertu með Íþróttaálfinum og Sollu, Kristmundi Axel, Elínu Hall, Jóni Jónssyni og öllum Hafnfirðingum þar sem hjartað slær – í miðbæ Hafnarfjarðar. Fjölskyldan skemmtir sér saman í Hafnarfirði. Líf, fjör, list, tónlist og alls kyns uppákomur frá morgni til kvölds á þessum hátíðisdegi.
🎈 Byrjaðu daginn í sjósundi og gufu, kíktu svo á víkingana á Víkingahátíðinni, prófaðu hjólabretti eða jafnvel badminton. Gakktu síðan í skrúðgöngu að Thorsplani og Ráðhústorgi þar sem hátíðin nær hámarki. Þar bíða skemmtiatriði, tónleikar, dans, diskó og dýrindis veitingar af ýmsum gerðum.
Dagskrá frá morgni til kvölds
Þjóðhátíðarsviðið við Ráðhústorg
🎶 Dagskráin heldur áfram en frá kl.19 verður tónlistarveislu við Ráðhústorg þar sem landsþekkt tónlistarfólk stígur á svið!
🍔 Matarvagnar verða víðsvegar um svæðið. Stemningin verður sannkölluð 17. júní hátíð eins og hún gerist best í Hafnarfirði.
✨ Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að leggja bílum nálægt miðbænum og ganga inn á svæðið, njóta dagsins saman – og skilja hundana eftir heima 🐾.
Verið öll hjartanlega velkomin – við sjáumst í Hafnarfirði 17. júní!
👉 Sjá nánar um alla viðburði dagsins
🚧🚗❌ Samgöngur og umferðalokanir
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur:
Dagskrá getur breyst án fyrirvara og viðburðir bæst við eða frestast.