Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut

Framkvæmdir Tilkynningar

Vegna vegaframkvæmda (fræsing og malbikun) verða eftirfarandi svæði á/við Reykjanesbraut lokuð þann 21.júní til 22.júní.

Nánar:

„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir sunnudaginn 21. júní og aðfaranótt 22. Júní.“

Fræsing á Reykjanesbraut – Hringtorg við Lækjargötu. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.20:00 til kl.04:00 aðfaranótt 22. júní.

„Þrengt verður í eina akrein á Reykjanesbraut við Ásvelli og veginum verður síðan lokað í framhaldinu. Einnig verður lokað inn á Reykjanesbraut frá Kaldárselsvegi. Hjáleið verður um Strandgötu, Fjarðargötu og Reykjavíkurveg.“

„Malbikun á Reykjanesbraut – Kaplakriki / Sólvangur. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.20:00 til kl.06:00 aðfaranótt 22. Júní. Kaflinn er 750m langur.“

„Reykjanesbraut verður lokuð á milli Kaplakrika og Lækjargötu. Hjáleið verður um Strandgötu, Fjarðargötu og Reykjavíkurveg.“

„Malbikun á Reykjanesbraut – Hringtorg við Lækjargötu. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.23:00 til kl.06:00 aðfaranótt 22. júní.

Sjá yfirlitsmynd – Reykjanesbraut hringtorg við Lækjargötu / Ásvellir / Kaldárselsvegur.

Sjá yfirlitsmynd – Kaplakriki / Lækjargata og Fjarðarhraun / Flatahraun.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt