Hafnfirsk ungmenni tóku þátt í vinarbæjarmóti í Finnlandi
Hópur ungmenna úr Hafnarfirði tók þátt í vinabæjarmóti sem fram fór í Finnlandi á dögunum. Þau efldu vináttu, samskipti og samstarf milli landa.
Efldu tengsl og þekkingu
Hópur ungmenna úr Hafnarfirði tók þátt í vinabæjarmótinu Nordic Meeting 2026 – Nice to Meet Me sem fram fór í Hämeenlinna í Finnlandi dagana 20.–25. apríl. Mótið er hluti af norrænu vinabæjasamstarfi þar sem þátttakendur frá vinabæjum hittast annað hvert ár til að efla vináttu, menningarsamskipti og samstarf um málefni sem varða sveitarfélögin og íbúa þeirra.
Þema mótsins í ár var almenn vellíðan ungmenna, með áherslu á að kynnast sjálfum sér betur, sýna sjálfum sér umhyggju og taka tillit til fólksins í kringum sig. Unnið var út frá hugmyndafræði Hand of Mental Health og tóku ungmennin þátt í fjölbreyttum vinnustofum, umræðuhópum og verkefnum sem tengdust andlegri heilsu og vellíðan.
Markmið verkefnisins var ekki síður að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að mynda ný tengsl, kynnast fjölbreyttri menningu, eignast vini þvert á landamæri og læra af hvort öðru.
Fjölbreytt dagskrá og öflug þátttaka
Vikan var þéttskipuð og fjölbreytt. Ungmennin tóku meðal annars þátt í íþrótta- og samvinnuleikjum, matarsmiðjum þar sem útbúnir voru ýmsir réttir, umræðum um matarvenjur og heilsu, útivistarverkefnum og skapandi vinnustofum.
Sérstaka athygli vakti verkefni þar sem þátttakendur unnu saman að því að hanna og setja upp svokallaðar hvíldarstöðvar. Þar nýttu hóparnir hugmyndaauðgi sína og sköpuðu aðstæður sem stuðla að ró, slökun og vellíðan. Ungmennin frá Hafnarfirði stóðu sig einstaklega vel.
Hópurinn heimsótti einnig listasafn í Hämeenlinna þar sem þátttakendur unnu skapandi verkefni út frá listaverkum og tóku þátt í vinnustofum ásamt ungmennaleiðtogum, embættismönnum og kjörnum fulltrúum frá þátttökusveitarfélögunum.
Rödd ungmenna fær vægi
Í lok vikunnar fór fram sérstakur umræðu- og samráðsfundur þar sem ungmenni, sveitarstjórnarfulltrúar og embættismenn ræddu saman um niðurstöður verkefnisins og hvernig gera megi áskoranir og þarfir ungs fólks sýnilegri í sveitarfélögunum.
Unnar Ómar Viggósson flutti ávarp fyrir hönd íslenska hópsins um upplifun þátttakenda af verkefninu og þátttöku þeirra í mótinu. Þá tóku hann og Helgi Rafn Egilsson einnig þátt í pallborðsumræðum með ungmennum og kjörnum fulltrúum frá öðrum þjóðum.
Samheldni og jákvæð upplifun
Ungmennin voru dugleg að kynnast öðrum þátttakendum, taka virkan þátt í verkefnum og mynda ný vinatengsl.
„Þau voru sveitarfélaginu til mikils sóma, tóku virkan þátt í öllum verkefnum og sýnt mikinn áhuga á því að kynnast jafningjum sínum frá hinum vinabæjarþjóðunum,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags og með umsjón yfir Ungmennaráði Hafnarfjarðar.
Vinabæjarmótið í Hämeenlinna var því bæði lærdómsrík og eftirminnileg reynsla þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að byggja upp ný tengsl, styrkja sjálfsmynd sína og ræða mikilvægi andlegrar heilsu og vellíðanar ungmenna í norrænu samhengi og koma til baka reynslunni ríkari.
Vinabæir í norrænu vinabæjarkeðjunni hittast reglulega á vinabæjarmótum sem haldin eru annað hvert ár. Mótin samanstanda af uppákomum æskulýðs-, íþrótta- og menningarhópa frá bæjunum auk ráðstefna og málþinga um hin ýmsu sameiginlegu málefni norrænu bæjanna.

Fulltrúarnir sem fóru í ferðina: Fjóla Huld Daðadóttir, Rakel Sunna Magnúsdóttir, Unnar Ómar Viggósson, Helgi Rafn Egilsson, Lilja Bergrós Kristjánsdóttir og Agnes Sigríður Magnúsdóttir.