Skóla- og frístundaliði í baðvörslu – Íþróttahús Hraunvallaskóla

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 23.06.2026

Umsóknarfrestur til: 07.07.2026

Tengiliður: lars@hraunvallaskoli.is;adalbjorgs@hraunvallaskoli.is

 

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

 

Ráðningatímabil er frá 15. ágúst til 31. maí.  Starfshlutfall er um 57%.

Unnið er eftir vaktarúllu þar sem vinnutími er frá 16.00- 22.30 2 x í viku virka daga og annan hvern föstudag og frá kl. 10-16 annan hvern laugadag.  

Helstu verkefni og ábyrgð:  

  • Sér um baðvörslu í íþróttahúsi Hraunvallaskóla
  • Sér um þrif í íþróttahúsinu
  • Tekur á móti og aðstoðar þá sem leigja tíma í íþróttahúsi Hraunvallaskóla frá kl. 16:00  
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
     

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
  • Almenn tölvukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is,  og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is  eða í síma 590 2800.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.  

Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2026.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf