Deildarstjóri yngsta stigs – Lækjarskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 24.06.2026
Umsóknarfrestur til: 08.07.2026
Tengiliður: dogg@laekjarskoli.is
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í Lækjarskóla.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan og samvinna
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Fyrir nokkrum árum hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýrir daglegu starfi á yngsta stigi í samvinnu við skólastjórnendur, kennara og foreldra
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í uppbyggingu öflugrar liðsheildar á vinnustaðnum ásamt stjórnunarteymi
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntun og hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Kennslureynsla í grunnskóla skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og /eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
- Reynsla af- og/eða þekking á SMT-skólafærni æskileg
- Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild
- Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi.
Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóra í síma 6645877 eða með tölvupósti dogg@laekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2026.
Greinagóð ferilsskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.