Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 24.06.2026
Umsóknarfrestur til: 03.07.2026
Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf í sólarhingsþjónustu við fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsfólki í fullt starf og hlutastarf. Starfið er tímabundið til 31.desember 2026 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Ágætis tölvukunnátta
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
- Ökuréttindi skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 664-5726, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3.júlí 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.