Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni – Hnotubergi

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 25.06.2026

Umsóknarfrestur til: 12.07.2026

Tengiliður: hildurh@hafnarfjordur.is

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k.

Starfshlutfall er 80% – 90% og unnið er í vaktavinnu. Vinnutími, morgun-, kvöld- og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, fræðslu og samskiptum við aðrar stofnanir
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda, leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Setja upp og fylgja eftir þjónustuáætlunum sem og starfsáætlun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfu:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
  • Reynsla af skipulagi faglegs starfs á sviði þroskaþjálfunar
  • Samstarfs- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, samviskusemi, hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hildur Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hildurh@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2026

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

 

Önnur störf