Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk – Hnotubergi

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 25.06.2026

Umsóknarfrestur til: 12.07.2026

Tengiliður: hildurh@hafnarfjordur.is

Skammtímadvöl er fyrir fötluð ungmenni sem dvelja þar í mislangan tíma, markmið og hlutverk skammtímadvalar er að veita ungmennum og fjölskyldum þeirra stuðning við sín daglegu verkefni.

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%. Um er að ræða vaktavinnu þ.e. morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Ráðning er frá og með 1. september 2026

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Almenn heimilisstörf
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hildur Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hildurh@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2026

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf